Breska verslunarkeðjan J. Sainsbury kaupir ekki lengur frosinn fisk af dótturfélagi Samherja í Bretlandi. Ákvörðun um að slíta því viðskiptasambandi var þó tekin áður en að Kveikur og Stundin opinberuðu meintar mútugreiðslur, peningaþvætti og skattasniðgöngu Samherja í tengslum við veiðar fyrirtækisins í Namibíu.
Frá þessu er greint á fréttasíðunni Undercurrent News sem sérhæfir sig í fréttum af sjávarútvegsmálum. Þar kemur enn fremur að Marks and Spencer (M&S), hinn stóra verslunarkeðjan sem hefur keypt fisk af starfsemi Ice Fresh Seafood, dótturfélags Samherja, í Grimsby, fylgist mjög vel með þróun mála í mútumálinu, þar sem Samherja er ætlað að hafa greitt að minnsta kosti 1,4 milljarða króna fyrir aðgengi að ódýrum kvóta í Namibíu. Ice Fresh Seafood keypti stærri verksmiðju í Grimsby árið 2017 til að sinna aukinni eftirspurn frá Sainsbury´s og M&S.
Samherjamálið hefur þegar haft margháttaðar afleiðingar. Tveir ráðherrar í Namibíu hafa sagt af sér embætti og annar þeirra var nýverið handtekinn, þótt honum hafi, að minnsta kosti tímabundið, verið sleppt aftur. Hinn ráðherrann og tveir ætlaðir samverkamenn þeirra eru eftirlýstir í Namibíu. Þá hefur Þorsteinn Már Baldvinsson, einn aðaleigenda Samherja, stigið til hliðar sem forstjóri félagsins og hætt í stjórnum að minnsta kosti þriggja sjávarútvegsfyrirtækja sem Samherji á hlut í.
Undercurrent News hefur það eftir ónefndur sérfræðingi í sjávarútvegi að ákvörðun Sainsbury´s um að hætta viðskiptum við Samherja tengist ekki mútumálinu, heldur hafi hún átt lengri aðdraganda. Samherji vildi ekki svara spurningum miðilsins um málið.
Í frétt hans er rætt við talsmann M&S-keðjunnar, sem segir að þar sé vel fylgst með því hvernig Samherjamálið þróist. Fyrir liggi að M&S kaupi ekki fisk sem veiddur hafi verið í namibíska-hluta starfsemi Samherja. „Við erum mjög skýr með að við krefjumst þess að allir okkar birgjar hagi viðskiptum sínum á siðlegan og löglegan hátt og við tökum þessar ásakanir mjög alvarlega,“ sagði talsmaðurinn.