Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg hefur samþykkt tillögu um vinnustöðvun sem áformað er að hefjist í febrúar næstkomandi. Félagsmenn þurfa að samþykkja tillöguna og er undirbúningur hafinn á skrifstofum Eflingar fyrir atkvæðagreiðslu. Samkvæmt tillögunni verða hálfir og heilir verkfallsdagar með stigvaxandi þéttleika fyrri hluta febrúarmánuðar og ótímabundið verkfall frá mánudeginum 17. febrúar næstkomandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu sem félagið sendi frá sér í dag.
Þá segir í tilkynningunni að ákvörðun um að leggja fram tillögu um verkfallsboðun hafi verið tekin að loknum samningafundi í dag hjá ríkissáttasemjara. Viðræður haldi áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða. Óskaði nefndin í dag eftir samningafundi með Reykjavíkurborg næstkomandi fimmtudag.
„Við höfum fengið nóg“
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir við tilefnið að Reykjavíkurborg hafi enga viðleitni sýnt til að koma til móts við vanda láglaunafólksins sem haldi uppi grunnþjónustu borgarinnar eða til að standa við eigin fagurgala um borgina sem vinnustað jöfnuðar. Reykjavíkurborg hafi sýnt starfsfólki sínu á lægstu laununum vanvirðingu í þessum viðræðum, með framkomu sinni, töfum og sinnuleysi. „Við höfum fengið nóg. Við krefjumst þess að gengið verði frá sanngjörnum samningi sem fyrst. Við bindum vonir við fundinn í næstu viku.“
Rúmlega 1800 starfsmenn Reykjavíkurborgar starfa undir kjarasamningi Eflingar. Þar af eru yfir 1000 á leikskólum, 710 í umönnunarstörfum á velferðarsviði og um 140 í fjölbreyttum störfum á umhverfis- og skipulagssviði.
Nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslu verða birtar á næstu dögum, samkvæmt Eflingu.