Kanna einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni á Alþingi

Félagsvísindastofnun hefur umsjón með rannsókn á starfsumhverfi og vinnustaðamenningu Alþingis. Könnunin er þáttur í því ferli að kortleggja umfang ofbeldishegðunar á þjóðþingum Evrópu.

Þingsetning 10. sept 2019
Auglýsing

Alþingi stendur nú fyrir rann­sókn á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis með sér­stakri áherslu á ein­elti, kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Alþing­is.

­Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni hefur Félags­vís­inda­stofnun umsjón með rann­sókn­inni. Um er að ræða net­könnun með spurn­ingum bæði til þing­manna og starfs­manna sem tekur mið af rann­sókn Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins (IPU) og Evr­ópu­ráðs­þings­ins (PACE) á kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi á evr­ópskum þjóð­þingum og verða nið­ur­stöður því að hluta til sam­an­burð­ar­hæf­ar, sam­kvæmt Alþingi.

Í þeirri rann­sókn kom meðal ann­ars fram að 85 pró­sent þing­kvenna í 45 löndum Evr­ópu hefðu verið beittar kyn­ferð­is­legu ofbeldi, áreitni og kynja­mis­rétti í vinn­unni. Rann­sóknin náði til 123 kvenna og voru tekin við­töl við allar kon­urn­ar.

Auglýsing

Kort­leggja umfang ofbeld­is­hegð­unar á þjóð­þingum Evr­ópu

Þá verður jafn­framt nýleg rann­sókn sem Félags­vís­inda­stofnun vann fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið á íslenskum vinnu­mark­aði, Vald­beit­ing á vinnu­stað, höfð til hlið­sjónar og sam­an­burð­ar.

Könn­unin er, sam­kvæmt til­kynn­ingu Alþing­is, þannig þáttur í því ferli að kort­leggja umfang ofbeld­is­hegð­unar – svo sem ein­elt­is, kyn­ferð­is­legrar og kyn­bund­innar áreitni – á þjóð­þingum Evr­ópu, en hún er einnig til að afla almennra upp­lýs­inga um Alþingi sem vinnu­stað og sam­eig­in­legt starfs­um­hverfi þing­manna og starfs­manna.

Starfs­menn og þing­menn hafa fengið bréf frá for­seta Alþingis með hvatn­ingu til að taka þátt í könn­un­inni, þar sem bent er á að góð svörun auki veru­lega gæði könn­un­ar­innar og gagn­semi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent