Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn forseti viðskiptafræðideildar árin 2020 til 2022 og tekur við starfinu 1. júlí næstkomandi af Inga Rúnari Eðvarðssyni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HÍ.
Gylfi hefur starfað við viðskiptafræðideild frá árinu 1996, fyrst sem stundakennari, aðjúnkt frá 1997 til 1998 og dósent frá 1. október 1998. Hann var formaður viðskiptaskorar Háskóla Íslands árin 2000 til 2004 og forseti viðskipta- og hagfræðideildar 2004 til 2006.
Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að Gylfi hafi gegnt margvíslegum stjórnunar- og nefndarstörfum í gegnum tíðina en hann var viðskiptaráðherra og síðar efnahags- og viðskiptaráðherra frá febrúar 2009 til september 2010.
Hann útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1986, cand. oecon. frá Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 1990, M.A. í hagfræði frá Yale University 1991 og M.Phil. frá sama skóla 1994. Doktorspróf frá Yale 1997. Sérsvið Gylfa eru einkum fjármál og rekstrarhagfræði, en hann hefur einnig stundað rannsóknir og sinnt kennslu á fleiri sviðum innan hagfræði.
Nýr varaforseti deildarinnar frá sama tíma verður Erla Sólveig Kristjánsdóttir, dósent. Hún er með doktorspróf í alþjóðasamskiptum frá Arizona State University og hefur starfað við Viðskiptafræðideild frá árinu 2013, samkvæmt Háskóla Íslands.
Gylfi skrifar á Facebook við tilefnið: „Vandi fylgir vegsemd hverri!“
Vandi fylgir vegsemd hverri! (Reyndar ekki fyrr en 1. júlí!)
Posted by Gylfi Magnússon on Wednesday, January 22, 2020