Gylfi Magnússon nýr forseti viðskiptafræðideildar HÍ

Fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra hefur verið kjörinn forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands næstu tvö árin.

Gylfi Magnússon
Gylfi Magnússon
Auglýsing

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands, hefur verið kjör­inn for­seti við­skipta­fræði­deildar árin 2020 til 2022 og tekur við starf­inu 1. júlí næst­kom­andi af Inga Rún­ari Eðvarðs­syni. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá HÍ.

Gylfi hefur starfað við við­skipta­fræði­deild frá árinu 1996, fyrst sem stunda­kenn­ari, aðjúnkt frá 1997 til 1998 og dós­ent frá 1. októ­ber 1998. Hann var for­maður við­skipta­skorar Háskóla Íslands árin 2000 til 2004 og for­seti við­skipta- og hag­fræði­deildar 2004 til 2006.

Í til­kynn­ing­unni kemur enn fremur fram að Gylfi hafi gegnt marg­vís­legum stjórn­un­ar- og nefnd­ar­störfum í gegnum tíð­ina en hann var við­skipta­ráð­herra og síðar efna­hags- og við­skipta­ráð­herra frá febr­úar 2009 til sept­em­ber 2010.

Auglýsing

Hann útskrif­að­ist með stúd­ents­próf frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík 1986, cand. oecon. frá Við­skipta- og hag­fræði­deild Háskóla Íslands 1990, M.A. í hag­fræði frá Yale Uni­versity 1991 og M.Phil. frá sama skóla 1994. Dokt­ors­próf frá Yale 1997. Sér­svið Gylfa eru einkum fjár­mál og rekstr­ar­hag­fræði, en hann hefur einnig stundað rann­sóknir og sinnt kennslu á fleiri sviðum innan hag­fræði.

Nýr vara­for­seti deild­ar­innar frá sama tíma verður Erla Sól­veig Krist­jáns­dótt­ir, dós­ent. Hún er með dokt­ors­próf í alþjóða­sam­skiptum frá Arizona State Uni­versity og hefur starfað við Við­skipta­fræði­deild frá árinu 2013, sam­kvæmt Háskóla Íslands.

Gylfi skrifar á Face­book við til­efn­ið: „Vandi fylgir veg­semd hverri!“

Vandi fylgir veg­semd hverri! (Reyndar ekki fyrr en 1. júlí!)

Posted by Gylfi Magn­ús­son on Wed­nes­day, Janu­ary 22, 2020


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent