Ástráður var á meðal umsækjenda um skipun í Landsrétt en gleymdist

Alls sóttu fjórir um embætti Landsréttardómara sem auglýst var laust til umsóknar í byrjun árs. Þar á meðal er einn þeirra sem var metinn á meðal hæfustu umsækjenda árið 2017, en ekki skipaður.

Ástráður Haraldsson héraðsdómari.
Ástráður Haraldsson héraðsdómari.
Auglýsing

Mann­leg mis­tök urðu til þess að það gleymd­ist að hafa nafn Ást­ráðs Har­alds­sonar hér­aðs­dóm­ara með í frétta­til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu þegar greint var frá umsækj­endum um skipun í laust emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. 

Umsækj­end­urnir eru því fjór­ir, en ekki þrír. Þeir, auk Ást­ráðs, Ásmundur Helga­­son, dóm­­ari við Lands­rétt, Ragn­heiður Braga­dótt­ir, dóm­­ari við Lands­rétt og Sandra Bald­vins­dóttir hér­­aðs­­dóm­­ari.

Um er að ræða stöðu við Lands­rétt sem losn­­aði þegar Ing­veldur Ein­­ar­s­dóttir var skipuð dóm­­ari við Hæsta­rétt í des­em­ber. 

Ást­ráður er einn þeirra fjög­­urra sem urðu af dóm­­ara­­sæti þegar Sig­ríður Á. And­er­sen, þáver­andi dóms­­mála­ráð­herra, ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­­­nefndar um skipun fimmtán dóm­­­­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­­­­­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­­­ustu. Alþingi sam­­­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Auglýsing
Tveir umsækj­end­anna sem metnir höfðu verið á meðal fimmtán hæf­­ustu af hæfn­is­­nefnd­inni, Ást­ráður og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­son, stefndu rík­­­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­­ar. Hæst­i­­­­­réttur komst að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu í des­em­ber 2018 að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­­­nefnd­­­­­ar­inn­­­­­ar. Auk þess kom­st Mann­rétt­inda­­­dóm­­­stóll Evr­­­ópu að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í mál­inu í mars í fyrra að dóm­­­ar­­­arnir fjórir sem voru færðir upp á lista Sig­ríðar væru ólög­­­lega skip­að­ir, og geti þar með ekki fellt dóma yfir þeim sem fyrir þá koma, enda hafi þeir ekki hlotið rétt­láta máls­­­með­­­­­ferð. Í kjöl­far þess að dómur Mann­rétt­inda­­­dóm­stóls­ins féll þá sagði Sig­ríður af sér emb­ætti dóms­­­mála­ráð­herra. 

Þeir voru báðir starf­andi lög­­­­­­­­­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­­­­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­­­­­­töl og þar með upp­­­­­­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­­­­­­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­­­­­­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­­­­­­ur­­­­­­kenn­ing­­­­­­ar­­­­­­kröfu um fjár­­­­­­tjón. Íslenska rík­­­­­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bæt­­­­­ur.

Ást­ráður var síðar skip­aður dóm­­ari við hér­­aðs­­dóm Reykja­vík­­­ur. Hann hefur á þessu ári sótt bæði um að vera skip­aður í laust emb­ætti við Lands­rétt og settur í annað af tveimur emb­ættum dóm­ara við Lands­rétt sem eru laus vegna þess að þeir fjórir dóm­arar sem voru skip­aðir ólög­lega 2017 eru í leyfi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent