Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, spyr í stöðuuppfærslu á Facebook hversu bilað það sé að borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, sem er með um tvær milljónir í laun á mánuði, hafi meiri áhyggjur af verkföllum en velferð starfsfólks sem heyri beint undir hann.
Hún spyr jafnframt hversu bilað það sé að mánaðarlaun borgarstjóra séu um sexfalt hærri en það sem fólk á lægstu launum þurfi að skrimta á. Samkvæmt upplýsingum á vef Reykjavíkurborgar þiggur borgarstjóri laun frá borginni að starfskostnaði meðtöldum samkvæmt ráðningarbréfi að upphæð 1.976.025 krónur. Auk þess fær hann þóknun fyrir stjórnarformennsku í Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, eða 229.151 krónur.
Ástæðan fyrir skrifum hennar er frétt Vísis þar sem fram kemur að Dagur segist hafa áhyggjur af fyrirhuguðum verkfallsaðgerðum félagsmanna Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg. Það sé alvarlegt mál ef þau verði að veruleika en nú standi yfir undirbúningur ef til þess kemur. Hann vonist þó til að samningar náist áður en til verkfalla kemur.
Sanna heldur áfram að velta fyrir sér launum í borginni og spyr enn fremur hversu bilað það sé að formaður borgarráðs fái 439.743 krónur á mánuði fyrir skatt ofan á grunnlaun sín vegna stjórnarsetu á vegum Reykjavíkurborgar, á meðan lægstu laun borgarinnar nái ekki einu sinni þeirri upphæð.
„Hversu bilað er það að eftir marga mánuði, sé ekki enn búið að semja við starfsfólk borgarinnar sem fær svo lág laun sem duga ekki út mánuðinn?
Hversu bilað er það að þegar þess er krafist að eðlileg launaleiðrétting eigi sér stað, séu fyrstu viðbrögðin þau að það megi ekki hækka fólkið á botninum of mikið þá gætu aðrir farið að biðja um meira?“ spyr hún.
Að lokum veltir Sanna því fyrir sér hvernig það gangi upp að meirihluti borgarstjórnar segist berjast fyrir femínískum gildum á meðan „við sjáum hér stóran hóp kvenna berjast við efnahagslegt óréttlæti sem vinnuveitandinn þeirra Reykjavíkurborg veldur.“
Hversu bilað er það að maður sem er með um tvær milljónir í laun á mánuði hafi meiri áhyggjur af verkföllum en velferð...
Posted by Sanna Magdalena Mörtudóttir on Tuesday, January 28, 2020