Arngrímur Brynjólfsson skipstjóri á skipinu Heinaste, sem Samherji gerði út við strendur Namibíu, hefur játað sök vegna ásakana um ólöglegar veiðar. Dómur verður kveðinn upp í máli hans, á miðvikudag.
Fjölmiðillinn New Era greinir frá þessu á Twitter síðu sinni.
Icelandic captain Arngrimur Brynjolfsonn of Samherji’s impounded Heinaste vessel has pleaded guilty to charges of illegal fishing in the Walvis Bay Magistrate’s Court today. He will be sentenced on Wednesday. Brynjolfsonn (67) is currently out on bail of N$100 000. pic.twitter.com/8se7uPF9OI
— New Era Newspaper (@NewEraNewspaper) January 31, 2020
Í yfirlýsingu sem Arngrímur sendi frá sér, skömmu eftir að hann var handtekinn, sagðist hann hafa verið í sinni síðustu sjóferð sem skipstjóri, en hann er 67 ára gamall. Hann sagðist hafa verið í góðri trú um að veiðarnar hafi verið löglegar, og utan bannsvæðis.
Arngrímur var hendtekinn 20. nóvember, rúmlega viku eftir að afhjúpandi umfjöllun Kveiks, Wikileaks og Al Jazeera, hafði birst, þar sem fjallað var um starfsemi Samherja í Namibíu, og meintar mútugreiðslur, skattaundanskot og peningaþvætti, en þessi mál eru nú til rannsóknar, meðal annars á Íslandi, í Noregi og einnig í Namibíu og Angóla.
Arngrímur játaði sök, eins og áður segir, en málið snérist um það, að skipið sem hann stýrði hefði verið við veiðar á hrygningarsvæði undan ströndum Namibíu.
Arngrímur hefur verið í farbanni frá því málið kom upp, og þurfti að reiða fram um 850 þúsund krónur í tryggingu, þar til dómur myndi falla í máli hans. Togarinn var kyrrsettur af namibískum yfirvöldum og er það staða mála enn þann dag í dag.