Stjórn Kadeco hefur ráðið aðila í stöðu framkvæmdastjóra, að því er fram kemur í svari fyrirtækisins við fyrirspurn Kjarnans. Samkvæmt Kadeco er sá aðili að hnýta lausa enda við núverandi vinnuveitanda en tilkynningar er að vænt fyrir lok þessarar viku.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins, Marta Jónsdóttir, sagði upp og lét af störfum áður en starfið var auglýst laust til umsóknar í lok september á síðasta ári en hún hafði verið framkvæmdastjóri fyrirtækisins síðan í ágúst 2017.
Á vef fyrirtækisins kemur fram að félagið hafi verið stofnað árið 2006 í kjölfar lokunar Bandaríkjahers á herstöð sinni við Keflavíkurflugvöll í þeim tilgangi að taka við þeim eignum sem ekki yrðu nýttar áfram til flugvallarreksturs eða í öryggissamstarfi Norður-Atlantshafsbandalagsins.
Markmið og tilgangur Kadeco sé að leiða þróun og umbreytingu á þessum eignum og landi sem Varnarliðið skildi eftir sig til borgaralegra nota. Í því felist meðal annars nauðsynleg undirbúningsvinna, svo sem úttekt á svæði og mannvirkjum ásamt þróunar- og vaxtarmöguleikum þess í samráði við þá aðila sem hafa hagsmuna að gæta.
Kadeco fær aukið hlutverk við ráðstöfum lóða ríkisins
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2020 var lagt til að gengið yrði til samninga við Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Isavia ohf. um skipulag og þróun lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar. „Jafnframt að ganga til samninga við Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ohf. um umsjón og fjármögnum verkefnisins og um fyrirkomulag og ráðstöfun á lóðum og landi í eigu ríkisins.“
Þróunarfélagið, sem heitir Kadeco, mun því fá aukið hlutverk við ráðstöfun á lóðum og landi í eigu ríkisins á svæðinu við og í kringum Keflavíkurflugvöll.
Kjarninn fjallaði um málið í september síðastliðnum en um umtalsverður viðsnúningur er að ræða frá fyrri áformum um félagið, en til stóð að leggja það niður fyrir tveimur árum síðan.
Stóð til að leggja starfsemina niður
Kjarninn greindi frá því í lok júní 2017 að til stæði að leggja starfsemi Kadeco niður í þeirri mynd sem það hafði starfað. Skipt hafði verið um stjórn í félaginu mánuði áður og tekin hafði verið ákvörðun um að upprunalegu hlutverki þess, að selja fasteignir á Ásbrú, væri lokið. Vilji væri þó að taka upp viðræður við heimamenn um hvernig væri hægt endurskoða starfsemina með það í huga.
Benedikt Jóhannesson, þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra, sagði við Kjarnann að hann hefði lýst þessari skoðun sinni á fundum með starfsfólki Kadeco í lok júnímánaðar 2017.
Umdeild skipun stjórnarformanns
Sumarið 2018 var aftur á móti skipaður nýr stjórnarformaður yfir Kadeco, Ísak Ernir Kristinsson. Hann var tilnefndur í starfið af Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra. Ísak var 24 ára þegar hann tók við starfinu, starfaði sem flugþjónn hjá WOW air og stundaði háskólanám í viðskiptafræði. Hann hafði auk þess verið virkur í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins um árabil og gegnt trúnaðarstörfum í unglingahreyfingu flokksins.
Ísak sagðist í samtali við RÚV skilja gagnrýni á að svo ungur maður væri orðinn stjórnarformaður í mikilvægu fyrirtæki en laun stjórnarformanns á mánuði eru 270 þúsund krónur.
Þann 26. júní síðastliðinn var svo skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Undir hana skrifuðu Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, ásamt fulltrúum Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Í fréttatilkynningu sem Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Kadeco, sendi frá sér af þessu tilefni kom fram að frá stofnun hefði Kadeco unnið markvisst að því að laða að erlenda fjárfestingu og alþjóðleg fyrirtæki á svæðið sem félagið fer með.