Stjórn Kadeco hefur ráðið Pálma Frey Randversson sem framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur til starfa 1. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Alls bárust 67 umsóknir um starfið og fékk stjórn Kadeco Capacent til þess að annast ráðningaferlið.
„Pálmi hefur undanfarin ár starfað sem deildarstjóri og verkefnastjóri hjá Isavia við mótun og utanumhald þróunar- og uppbyggingaráætlana Keflavíkurflugvallar. Þá hefur hann jafnframt stýrt hönnunarsamkeppni og forvali vegna þróunaráætlunar, tekið þátt í vinnu við deiliskipulag og aðalskipulag flugvallarins,“ segir í tilkynningunni.
Þá kemur enn fremur fram að Pálmi hafi lokið M.Sc. prófi í Urban Design, borgarhönnun, frá Háskólanum í Álaborg árið 2009 og B.Sc. prófi í sama fagi frá sama háskóla 2003. Hann hafi setið fjölda ráðstefna og námskeiða varðandi þróun flugvallaborga.
Hann starfaði áður sem verkefna- og teymisstjóri og borgarhönnuður hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Þar stýrði hann fjölmörgum verkefnum tengdum umhverfis-, skipulags- og samgöngumálum, samkvæmt Kadeco.
„Ég er þakklátur fyrir það mikla traust sem stjórn Kadeco sýnir mér og hlakka til að takast á við þá áskorun að þróa það mikla land sem umlykur Keflavíkurflugvöll á grundvelli samkomulags ríkisins, Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar og Isavia. Flugvallarsvæðið hefur gríðarlega vaxtamöguleika enda um framtíðarsvæði landsins að ræða,“ segir Pálmi Freyr.