Búist við að Þorsteinn Már snúi aftur sem forstjóri Samherja í næsta mánuði

Tímabundnu leyfi Þorsteins Más Baldvinssonar frá forstjórastóli Samherja virðist vera að fara að ljúka. Sitjandi forstjóri reiknar með að hann snúi aftur í næsta mánuði. Engin niðurstaða liggur fyrir í rannsókn Samherjamálsins hérlendis.

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi og líkast til verðandi forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi og líkast til verðandi forstjóri Samherja.
Auglýsing

Björgólfur Jóhanns­son segir að hann muni hætta sem for­stjóri Sam­herja fyrir lok mars­mán­að­ar. Búast megi við því að Þor­steinn Már Bald­vins­son snúi aftur í for­stjóra­stól­inn. Frá þessu greindi Björgólfur í hádeg­is­fréttum RÚV

Þar sagði Björgólfur að ljóst væri að hann hefði verið ráð­inn tíma­bundið og að plan Sam­herja væri að rann­sókn, þar sem fyr­ir­tækið réð norsku lög­manns­stof­una Wik­borg Rein til að fram­kvæma á við­skipta­háttum sín­um, yrði komin á loka­stig á þeim tíma. Aðspurður hvort að Þor­steinn Már myndi taka aftur við sem for­stjóri sagði Björgólfur að reikna mætti með því en að það væri stjórn félags­ins sem tæki þá ákvörð­un. Þor­steinn Már er einn helsti eig­andi Sam­herja ásamt fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni Helgu S. Guð­munds­dóttur og frænda sínum Krist­jáni Vil­helms­syni. Stjórn Sam­herja situr í umboði eig­enda fyr­ir­tæk­is­ins. 

Björgólfur tók við for­stjóra­starf­inu eftir að Kveik­­ur, Stund­in, Wik­i­­leaks og Al Jazeera birtu umfjöllun sína um við­­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu og víðar þar sem fjallað var um meintar mút­u­greiðsl­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu. Hann tók þá við af Þor­steini Má en í umfjöll­un­inni steig fram upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Sam­herja í Namib­íu, sem sagði að öll ætluð mútu­brot Sam­herja í land­inu hefði verið fram­kvæmd með vit­und og vilja for­stjór­ans.

Auglýsing
Auk rann­sóknar Wik­borg Rein á málum Sam­herja eru yfir­­­völd í Namib­­­íu, Angóla, Íslandi og í Nor­egi einnig að rann­saka mál tengd Sam­herj­a og fjöl­margir hafa verið ákærðir fyrir spill­ingu og önnur efna­hags­brot nú þegar í Namibíu vegna Sam­herj­­a­­máls­ins, meðal ann­­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar í rík­­is­­stjórn lands­ins. Alls sitja tíu manns í fang­elsi þar í landi vegna máls­ins. Engin nið­ur­staða liggur fyrir í rann­sókn á mál­inu hér­lendis enn sem komið er og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur hún verið í fullum gangi und­an­farna mán­uð­i. 

Vill aftur í stjórn Sjóvá

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að Björgólfur sem hefur verið tíma­bund­inn for­­stjóri Sam­herja frá því um miðjan nóv­­em­ber í fyrra, sæk­t­ist eftir því að sitja áfram í stjórn trygg­inga­­fé­lags­ins Sjó­vá. Björgólfur var stjórn­­­ar­­for­­maður félags­­ins áður en hann tók við for­­stjóra­­starf­inu hjá Sam­herja, en til­­kynnti á stjórn­­­ar­fundi 19. nóv­­em­ber 2019 að hann myndi víkja tíma­bundið úr stjórn­­inni „vegna anna.“

Í skýrslu til­­­nefn­inga­­nefndar Sjó­vá, sem birt var í gær, kemur fram að Björgólfur áætli að láta af störfum hjá Sam­herja fyrir lok fyrsta árs­fjórð­ungs 2020, sem lýkur í lok mars næst­kom­andi.

Björgólfur var fyrst kjör­inn í stjórn Sjóvá í mars í fyrra og tók sam­­stundis við sem stjórn­­­ar­­for­­mað­­ur. Stærsti eig­andi Sjóvá er SVN eigna­­fé­lag, sem er í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar, með 13,97 pró­­sent eign­­ar­hlut. Sam­herji á 44,6 pró­­sent í Síld­­ar­vinnsl­unni auk þess sem Kald­bak­­­ur, félag í eigu Sam­herja, á 15 pró­­­sent hlut í öðru félagi sem á 5,3 pró­­­sent hlut í Síld­­­ar­vinnsl­unni. Sam­an­lagður eign­­ar­hlutur Sam­herja og tengdra aðila í Síld­­ar­vinnsl­unni er því 49,9 pró­­sent og Þor­­­steinn Már Bald­vins­­son, einn aðal­­eig­anda Sam­herja og fyrr­ver­andi for­­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, var stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Síld­­­ar­vinnsl­unn­ar um ára­bil.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent