Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur svarað Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra í Reykjavík, á Facebook en hún segist vera tilbúin að hitta hann á fundi – eins og hann leggi til – en þó með tveimur skilyrðum.
Í fyrsta lagi að hann birti opinberlega það tilboð sem samninganefnd Eflingar var kynnt á samningafundi þann 19. febrúar síðastliðinn, daginn sem hann mætti í Kastljóssviðtalið, þannig að allir geti borið tilboðið saman við ummæli hans í Kastljósinu.
Í öðru lagi að hann fallist á að mæta sér eða öðrum fulltrúa Eflingar í setti í útvarps- eða sjónvarpsviðtali áður en vikan er úti.
„Ef þú fellst á þetta þá skal ég koma og hitta þig til fundar á hvaða tíma sem hentar þér,“ skrifar Sólveig Anna á Facebook-síðu Dags.
Efling bauðst til að fresta verkfallsaðgerðum
Formálinn er sá að Efling bauðst í gærmorgun til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa gegn því að borgarstjóri veitti skriflega staðfestingu á „Kastljósstilboðinu“. Erindi þessa efnis var sent til borgarstjóra með afriti á ríkissáttasemjara og var frestur til svars gefinn til klukkan 16:00 í gær.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, staðfesti það við Kjarnann í gær að Dagur hefði ekki svarað fyrir þann tíma og yrði því ekkert af frestun verkfallsaðgerða.
Segist standa við allt sem fram kom í Kastljósi
Dagur svaraði aftur á móti á Facebook í gær eftir klukkan 16:00 en í stöðuuppfærslu sagðist hann standa við allt sem hann sagði í Kastljósi á sínum tíma en að það væri ekki gagnlegt þegar reynt væri að að snúa út úr þeim yfirlýsingum eða standa í skeytasendingum í fjölmiðlum til að leysa kjaradeilur.
Hann sagði að í stað þess að standa í frekari skeytasendingum í fjölmiðlum vildi hann bjóða Sólveigu Önnu til fundar til að ræða hina erfiðu stöðu viðræðna og hvar beri á milli aðila.
Í viðbrögðum Dags sagðist hann fagna því að Efling opnaði á að fresta verkföllum og sagðist standa við allt sem hann sagði í Kastljósi á sínum tíma. „Gott tilboð borgarinnar um að hækka laun Eflingarfólks hjá borginni liggur fyrir, með sérstakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvennastétta. Tilboðið er á grunni lífskjarasamninganna, með lengingu orlofs og útfærslu á styttingu vinnuvikunnar,“ skrifaði hann.