Tilbúin að hitta Dag með tveimur skilyrðum

Formaður Eflingar hefur svarað borgarstjóra og segist vera tilbúin að hitta hann á fundi með tveimur skilyrðum.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Auglýsing

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, hefur svarað Degi B. Egg­erts­syni, borg­ar­stjóra í Reykja­vík, á Face­book en hún seg­ist vera til­búin að hitta hann á fundi – eins og hann leggi til – en þó með tveimur skil­yrð­um.

Í fyrsta lagi að hann birti opin­ber­lega það til­boð sem samn­inga­nefnd Efl­ingar var kynnt á samn­inga­fundi þann 19. febr­úar síð­ast­lið­inn, dag­inn sem hann mætti í Kast­ljós­svið­talið, þannig að allir geti borið til­boðið saman við ummæli hans í Kast­ljós­inu.

Í öðru lagi að hann fall­ist á að mæta sér eða öðrum full­trúa Efl­ingar í setti í útvarps- eða sjón­varps­við­tali áður en vikan er úti.

Auglýsing

„Ef þú fellst á þetta þá skal ég koma og hitta þig til fundar á hvaða tíma sem hentar þér,“ skrifar Sól­veig Anna á Face­book-­síðu Dags.  

Efl­ing bauðst til að fresta verk­falls­að­gerðum

­For­mál­inn er sá að Efl­ing bauðst í gær­morgun til að fresta verk­­falls­að­­gerðum í tvo sól­­­ar­hringa gegn því að borg­­ar­­stjóri veitti skrif­­lega stað­­fest­ingu á „Kast­­ljós­stil­­boð­in­u“. Erindi þessa efnis var sent til borg­­ar­­stjóra með afriti á rík­­is­sátta­­semj­­ara og var frestur til svars gef­inn til klukkan 16:00 í gær. 

Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Efl­ing­ar, stað­festi það við Kjarn­ann í gær að Dagur hefði ekki svarað fyrir þann tíma og yrði því ekk­ert af frestun verk­falls­að­gerða. 

Seg­ist standa við allt sem fram kom í Kast­ljósi

Dagur svar­aði aftur á móti á Face­book í gær eftir klukkan 16:00 en í stöðu­upp­færslu sagð­ist hann standa við allt sem hann sagði í Kast­­ljósi á sínum tíma en að það væri ekki gagn­­legt þegar reynt væri að að snúa út úr þeim yfir­­lýs­ingum eða standa í skeyta­­send­ingum í fjöl­miðlum til að leysa kjara­­deil­­ur.

Hann sagði að í stað þess að standa í frek­­ari skeyta­­send­ingum í fjöl­miðlum vildi hann bjóða Sól­­veigu Önnu til fundar til að ræða hina erf­iðu stöðu við­ræðna og hvar beri á milli aðila.

Í við­brögðum Dags sagð­ist hann fagna því að Efl­ing opn­aði á að fresta verk­­föllum og sagð­ist standa við allt sem hann sagði í Kast­­ljósi á sínum tíma. „Gott til­­­boð borg­­ar­innar um að hækka laun Efl­ing­­ar­­fólks hjá borg­inni liggur fyr­ir, með sér­­stakri áherslu á að bæta lægstu laun og kjör kvenna­­stétta. Til­­­boðið er á grunni lífs­kjara­­samn­ing­anna, með leng­ingu orlofs og útfærslu á stytt­ingu vinn­u­vik­unn­­ar,“ skrif­aði hann. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent