„Áfram höldum við. Þetta verkefni sem við stöndum frammi fyrir mun reyna á allskonar þætti. En við ráðum vel við verkefnið.“
Þetta segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í stöðuuppfærslu á Facebook í dag.
Ríkislögreglustjóri lýsti fyrr í dag yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónuveirunnar. Fyrstu smit innanlands voru staðfest í dag en þau eru tvö talsins. Nú hafa 43 einstaklingar greinst með veiruna.
Þórdís Kolbrún segir að ljóst sé að faraldurinn muni hafa áhrif á stöðu efnahagsmála. Hún vísar í orð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra en hún sagði að stjórnvöld undirbúi nú aðgerðir í ríkisfjármálum til að vinna gegn slaka í efnahagsmálum og sama eigi við um Seðlabankann. „Við erum vel í stakk búin, með öflugan gjaldeyrisvaraforða, lágt skuldahlutfall og góðan aðgang að erlendu fjármagni,“ sagði Katrín.
Væntingar um að eftirspurn eftir ferðaþjónustu geti skilað sér hratt aftur
Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra segir enn fremur í stöðuuppfærslu sinni að áhrif faraldursins og óvissa honum tengd muni koma fram snemma og af þunga í ferðaþjónustu og tengdri starfsemi. Ljóst sé að þar sem staðan breytist frá degi til dags verði óhjákvæmilegt að endurmeta hana og hugsanleg viðbrögð eftir framvindu mála hér og um heim allan. Væntingar séu um að eftirspurn eftir ferðaþjónustu gæti skilað sér hratt aftur ef óvissan gangi tímanlega til baka.
Þá bendir hún á að vinna sé hafin við undirbúning alþjóðlegs markaðsátaks á áfangastaðnum Íslandi. Slíku átaki sé ekki hleypt af stokkunum við þessar aðstæður en það þurfi að vera klárt þegar aðstæður gefa tilefni til.
Þá sé vinna hafin við undirbúning markaðsátaks til að hvetja Íslendinga til að ferðast innanlands á næstu vikum og mánuðum.
Frekari aðgerðir séu til skoðunar.
Höfum öll hlutverki að gegna í þessum aðstæðum
„Stjórnvöld munu gera það sem þarf til að hemja útbreiðslu veirunnar og vinna gegn áhrifum hennar á efnahagslífið. Sú vinna er í fullum gangi.
Við höfum öll hlutverki að gegna í þessum aðstæðum. Sóttvarnir virka bara ef samfélagið fylgir leiðbeiningum. Þegar ég hef ekki viljað heilsa fólki með handabandi, faðma það eða kyssa og þegar ég geng um með spritt er það ekki vegna þess að ég sé hrædd um að smitast sjálf - heilsunnar vegna. Heldur skiptir máli að við öll fylgjum leiðbeiningum til þess að hefta útbreiðsluna. Þá eru í kringum mig elskað fólk sem myndi ráða verr við að fá veiruna. Til dæmis mamma mín, sjúkraliðinn, í fyrirbyggjandi krabbameinsmeðferð, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Við erum nefnilega öll í þessu saman,“ skrifar ráðherrann.
Hún lýkur færslunni við að segja að það skipti jafnframt máli að halda áfram að vera til og láta hjól atvinnulífisins snúast í verslun, þjónusta og menningu.
Þetta verkefni sem við stöndum frammi fyrir mun reyna á allskonar þætti. En við ráðum vel við verkefnið. Ljóst er að...
Posted by Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir on Friday, March 6, 2020