Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur í embætti ríkislögreglustjóra frá og með 16. mars næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins í dag.
Hæfnisnefnd sem skipuð var til að fara yfir og meta hæfni umsókna um embætti ríkislögreglustjóra mat Sigríði hæfasta umsækjenda, samkvæmt tilkynningunni.
Þá kemur fram að Sigríður Björk hafi frá árinu 2014 gegnt embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Áður en Sigríður tók við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu hafi hún gegnt embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum, þar áður hafi hún verið aðstoðarríkislögreglustjóri frá 2007 til 2008, sýslumaður á Ísafirði 2002 til 2006 og skattstjóri Vestfjarða frá 1996 til 2002.