„Að hindra útbreiðslu COVID-19 er vísindalegt viðfangsefni – ekki pólitískt“

Þingmaður Pírata segir að þegar kemur að því flókna, vandasama og vísindalega viðfangsefni að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar skuli ekki rugla saman tilfinningaþrungnum áhyggjum stjórnmálamanna við sérfræðiþekkingu á viðfangsefninu.

Helgi Hrafn Gunnarsson
Helgi Hrafn Gunnarsson
Auglýsing

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book í dag það vera ekk­ert mál fyrir hvaða póli­tíkus sem er að berja sér á brjóst og heimta að „meira sé gert“ til að hindra útbreiðslu COVID-19 veirunn­ar.

„En að hindra útbreiðslu COVID-19 veirunnar er vís­inda­legt við­fangs­efni, ekki póli­tískt. Stjórn­mála­menn vinna við að gaspra, en fyrst eiga þeir að hlust­a,“ skrifar hann.

Kjarn­inn greindi frá því í morgun að sótt­­varn­a­læknir hefði lagt til við heil­brigð­is­ráð­herra að ­sam­komu­­bann yrði sett á frá mið­­nætti 15. mars sem gilti í fjórar vik­­ur. Við­­burðir þar sem fleiri en hund­rað manns koma saman verða óheim­ilir sam­­kvæmt til­­lög­unni. Það mun eiga við stóra vinn­u­­staði, íþrótta­við­­burði, versl­­anir og kvik­­mynda­hús svo dæmi séu tek­in. Ekki verður þó lög­­­gæsla við stór­­mark­aði til að gæta þess að innan við hund­rað fari þangað inn í einu heldur er almenn­ingur hvattur til að fram­­fylgja tak­­mörk­un­un­­um.

Auglýsing

Ekki rugla saman til­finn­inga­þrungnum áhyggjum stjórn­mála­manna við sér­fræði­þekk­ingu

Helgi Hrafn segir að ákvarð­anir um hverju skuli loka eða hvernig sam­komu­bönnum skuli háttað eigi ekki heima í ein­hverri kosn­inga­lof­orða­sam­keppni um hver vilji „gera meira“ – því allir vilji gera það sem best er að gera. Það sé eng­inn á mála hjá þess­ari veiru. Hann segir að við séum öll á móti henni.

„Við höfum nóg að ríf­ast um þegar kemur að efna­hags­legu við­brögð­unum og þar er nóg af póli­tík – og einnig gríð­ar­lega margir og stórir óvissu­þætt­ir. En þegar kemur að því flókna, vanda­sama, erf­iða en umfram allt vís­inda­lega við­fangs­efni að sporna við útbreiðslu veirunn­ar, ekki rugla saman til­finn­inga­þrungnum áhyggjum stjórn­mála­manna við sér­fræði­þekk­ingu á við­fangs­efn­in­u,“ skrifar hann að lok­um.

Það er ekk­ert mál fyrir hvaða póli­tíkus sem er að berja sér á brjóst og heimta að „meira sé gert“ til að hindr­a...

Posted by Helgi Hrafn Gunn­ars­son on Fri­day, March 13, 2020


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent