Samherji Holding ehf., annar hluti Samherja-samstæðunnar, hefur sent fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands erindi þar sem félagið óskar eftir undanþágu frá yfirtökuskyldu sem myndaðist eftir að félagið eignaðist yfir 30 prósent eignarhlut í Eimskip þann 10. mars síðastliðinn.
Í tilkynningu til Kauphallar Íslands í dag segir að með bréfi til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í dag hafi Samherji Holding óskað eftir „undanþágu frá yfirtökuskyldunni vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem hefðu skapast á fjármálamarkaði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verðbréfaviðskipti er fjármálaeftirlitinu veitt heimild til að veita slíka undanþágu ef sérstakar ástæður mæla með því.“
Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja Holding, segir að á örfáum dögum hafi allt efnahagsumhverfið breyst stórlega, langt umfram það sem spár gerðu ráð fyrir. „Áhrifin eru afar víðtæk og keðjuverkandi á fjármálamarkaði og á efnahagslífið í heild sinni. Við teljum ekki skynsamlegt að tilboð um yfirtöku fari fram í skugga þess mikla umróts sem nú á sér stað. Við vonum öll að aðstæður verði heppilegri fyrr en síðar. Trú okkar á framtíð Eimskips hefur ekkert breyst.“
Málið er nú til skoðunar hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, sem getur sett skilyrði fyrir undanþágunni, t.d. varðandi frest til að selja hluti sem eru umfram 30 prósent eignarhlut og meðferð atkvæðisréttar á því tímabili.
Virði bréfa í Eimskip hefur fallið um tæp 12 prósent síðastliðinn mánuð.