Alma Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sendu í gær bréf til skólastjórnenda, kennara og foreldra þar sem þau áréttuðu mikilvægi þess að nemendur í leik- og grunnskólum héldu áfram að sækja skóla þrátt fyrir takmarkanir á skólastarfi.
„Nauðsyn þess að hefta útbreiðslu COVID-19 faraldursins er öllum ljós. Markmið aðgerða er að auka líkur á því að heilbrigðiskerfið geti sinnt þeim sem veikjast af COVID-19 hér á landi ásamt því að geta sinnt annarri bráðaþjónustu,“ segir í bréfinu.
Að mati sóttvarnalæknis eru líkur á smiti frá ungum börnum töluvert ólíklegra en frá fullorðnum „enda sýna rannsóknir hér á landi og á hinum Norðurlöndunum að smit hjá börnum er fátítt.“ Því megi leiða líkum að því að ekki sé tilefni til þess að takmarka skólastarf frekar í sóttvarnarskyni.
Náið sé fylgst með stöðunni og vilja landlæknir og sóttvarnalæknir koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri við skólastjórnendur, kennara og starfsfólk skóla og foreldra nemenda í leik- og grunnskólum:
- Heilbrigð börn ættu að halda áfram að sækja sinn skóla. Námið er þeim mikilvægt, sem og sú virkni og aðhald sem því fylgir.
- Kennarar og starfsfólk skóla er framlínufólk í núverandi aðstæðum. Skólarnir eru mikilvægur hlekkur í okkar samfélagi og framlag skólasamfélagsins afar dýrmætt í því samhengi. Staðan er flókin og kallar á fjölbreyttar leiðir, úthald og sveigjanleika af hálfu allra.
- Kennarar og starfsfólk í áhættuhópum ættu að gæta fyllstu varúðar og skólar fara eftir sínum viðbragðsáætlunum ef upp kemur grunur um smit.
Undir bréfið skrifa Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma Möller landlæknir.