Fáir treysta fjármálakerfinu í tengslum við viðbrögð við faraldrinum

Almannavarnir og heilbrigðisstofnanir njóta yfirgnæfandi trausts landsmanna hvað viðbrögð við kórónuveirunni varðar. Á móti segjast fleiri vantreysta fjármálakerfinu en bera til þess traust, samkvæmt nýrri könnun MMR.

Fleiri vantreysta bönkunum en treysta þeim í tengslum við viðbrögð vegna útbreiðslu kórónuveirunnar, samkvæmt könnun MMR.
Fleiri vantreysta bönkunum en treysta þeim í tengslum við viðbrögð vegna útbreiðslu kórónuveirunnar, samkvæmt könnun MMR.
Auglýsing

Almanna­varnir og heil­brigð­is­stofn­anir njóta afger­andi trausts hjá íslenskum almenn­ingi þegar kemur að við­brögðum við útbreiðslu kór­ónu­veirunn­ar, sam­kvæmt skoð­ana­könnun MMR sem fram­kvæmd var dag­ana 18.-20. mar­s. 

Um 90 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til við­bragða bæði almanna­varna og heil­brigð­is­stofn­ana við útbreiðslu veirunn­ar. Traust til lög­regl­unnar mæld­ist litlu minna, eða rúm átta­tíu pró­sent. 

Rúm­lega helm­ingur lands­manna ber traust til Seðla­bank­ans og rík­is­stjórn­ar­innar hvað við­brögð við far­aldr­inum varð­ar, sam­kvæmt könn­un­inni, en 21 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera lítið traust til rík­is­stjórn­ar­innar í tengslum við við­brögð við far­aldr­in­um.

Auglýsing



Mynd: MMR

Traust til rík­is­stjórn­ar­innar fór vax­andi með auknum aldri svar­enda en 59 pró­sent í hópi elstu þátt­tak­enda kváð­ust bera mikið traust til rík­is­stjórn­ar­inn­ar, sam­an­borið við 44 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 18 til 29 ára. 

Tekið skal fram að þegar könn­unin var gerð hafði rík­is­stjórnin ekki kynnt allar þær aðgerðir sem nú hafa verið boð­aðar til þess að mæta efna­hags­á­föll­unum sem fyr­ir­séð er að heims­far­ald­ur­inn valdi hér­lend­is.

Þrjá­tíu og níu pró­sent þátt­tak­enda sögð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til Alþingis í tengslum við við­brögð við veirunni, en 27 pró­sent bera lítið traust til Alþingis í þeim aðstæðum sem nú eru uppi.

Fleiri van­treysta fjár­mála­kerf­inu en treysta

Einu aðil­arnir af þeim sem spurt var um í könnun MMR, sem fleiri van­treysta en bera traust til, eru bank­arnir og líf­eyr­is­sjóð­irn­ir. Ein­ungis 27 pró­sent segj­ast bera frekar eða mjög mikið traust til bank­anna í tengslum við við­brögð við veirunni, en 28 pró­sent segj­ast bera lítið traust til bank­anna.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir njóta minnst traust almenn­ings af öllum þeim sem spurt var um, sam­kvæmt könn­un­inni, en 20 pró­sent segj­ast bera traust til þeirra á meðan að fjórð­ungur aðspurðra, 25 pró­sent, sögð­ust van­treysta þeim.

Píratar og mið­flokks­fólk van­treysta rík­i­s­tjórn­inni helst

Þegar traust á hinum ýmsu aðilum er brotið niður eftir yfir­lýstum stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka sést að stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru, eins og vænta mátti, lík­leg­astir til þess að treysta rík­is­stjórn­inni.

Næst þar á eftir komu stuðn­ings­menn Við­reisn­ar, en 62 pró­sent þeirra sögð­ust bera frekar eða mjög mikið traust til rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Mynd: MMR

Þeir sem lýstu yfir stuðn­ingi við Mið­flokk­inn og Pírata skáru sig nokkuð frá öðrum hvað traust á rík­is­stjórn­inni varð­ar, en innan við þrjá­tíu pró­sent stuðn­ings­manna beggja flokka sögð­ust treysta við­brögðum rík­is­stjórn­ar­innar við útbreiðslu veirunn­ar. 

Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar sker sig hins vegar úr varð­andi traust á banka­kerf­inu við þessar aðstæð­ur, en 47 pró­sent sjálf­stæð­is­manna sögð­ust treysta við­brögðum bank­anna og 40 pró­sent við­reisn­ar­fólks.

Lands­menn treysta hvorum öðrum ágæt­lega

Helm­ingur lands­manna treystir almenn­ingi í tengslum við við­brögð við útbreiðslu veirunn­ar, sam­kvæmt könn­un­inni, en 14 pró­sent sögð­ust á móti bera lítið traust til almenn­ings.

Stuðn­ings­fólk Pírata, Mið­flokks­ins og Sam­fylk­ing­ar­innar reynd­ist ólík­legra en stuðn­ings­fólk ann­arra flokka til að segj­ast bera mikið traust til almenn­ings í land­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent