Segir Viðskiptaráð kasta kaldri gusu í andlit fólks sem sé að bjarga mannslífum

BSRB gagnrýnir umsögn Viðskiptaráðs um fjáraukafrumvarp harðlega, en þar kom fram vilji til að láta skerða starfshlutföll og kjaraskerðingar hjá opinberum starfsmönnum.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
Auglýsing

„Að krefj­ast þess að opin­berir starfs­menn sæti launa­skerð­ingum kemur eins og köld gusa í and­lit fólks sem leggur nótt við nýtan dag að bjarga manns­lífum og gera líf sam­borg­ara sinna bæri­legra, tryggja heilsu almenn­ings og halda uppi nauð­syn­legri þjón­ust­u,“ segir Sonja Ýr Þor­bergs­dótt­ir, for­maður BSRB.

Þar vísar hún í þær hug­myndir sem settar eru fram í umsögn Við­skipta­ráðs um frum­varp til fjár­auka­laga, og Kjarn­inn greindi frá í morg­un. Á meðal þess sem ráðið sagði þar að það séu mikil von­brigði að ekk­ert hafi heyrst frá stjórn­­völdum um stór­­fellda lækkun starfs­hlut­­falls og tíma­bundnar kjara­skerð­ingar opin­berra starfs­­manna vegna efna­hags­­legra afleið­inga veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­­dómn­­um. 

Þar sagði einnig að Ísland sé varla byrjað að sjá hverjar afleið­ing­­arnar verða af COVID-19 en stóra myndin sé sú að lands­fram­­leiðsla á mann muni falla veru­­lega. Hvað atvinn­u­lífið varði heyri til und­an­­tekn­inga að atvinn­u­­greinar verði ekki fyrir fjár­­hags­­legu höggi sem aftur leiðir til upp­­­sagna og kjara­rýrn­un­­ar. 

Sonja segir að meiri­hluti þjóð­ar­innar hafi lagt áherslu á að sam­staðan sé mik­il­væg­asta vopnið í bar­átt­unni gegn vánni sem fylgir COVID-19, bæði heilsu­fars­lega og efna­hags­lega. „Aðrir kjósa sér greini­lega aðra leið.“

Auglýsing
Í til­kynn­ingu frá BSRB vegna þessa segir einnig að skiln­ings­leysi Við­skipta­ráðs á opin­berum rekstri bendi til þess að við­skipta­lífið á Íslandi skilji ekki að það er einmitt grunn­þjón­ustan sem geri þeim kleift að starfa. „Hvernig ætla íslensk fyr­ir­tæki að starfa og dafna án öfl­ugs heil­brigð­is- og mennta­kerf­is? Hvernig á starfs­fólk fyr­ir­tækj­anna að geta sinnt störfum sínum ef ekki eru til staðar leik­skól­ar, grunn­skólar hjúkr­un­ar­heim­ili, þjón­usta við fólk með fötlun og langvar­andi veik­indi? Hver á að hirða sorpið sem skap­ast í rekstr­inum og dag­legu lífi starfs­fólks­ins, hver á að þrífa og tryggja hrein­læti? Hvernig ætla að fyr­ir­tækin að starfa í sam­fé­lagi án öfl­ugrar lög­gæslu? Hvernig ætla fyr­ir­tækin að koma vörum sínum og þjón­ustu á markað án trausts vega­kerfis og fjar­skipta­inn­viða? Hvernig ætla fyr­ir­tæki lands­ins að starfa í inn­lendu og alþjóð­legu umhverfi án íslensks stjórn­kerfis sem stendur vörð um leik­reglur og þjón­ustu við almenn­ing og fyr­ir­tæki?“

Krafa Sam­taka atvinnu­lífs­ins ótíma­bær og óskilj­an­leg

Kjarn­inn greindi einnig frá því að Sam­tök atvinn­u­lífs­ins hefðu verið á svip­uðum slóðum í sinni umsögn.

Þar var gerð athuga­­semd við að engin hag­ræð­ing­­ar­krafa sé sett á rík­­is­­stofn­­anir í fjár­­auka­laga­frum­varp­inu. „Við blasir að starf­­semi margra stofn­ana mun drag­­ast veru­­lega saman eða jafn­­vel liggja niðri í ein­hverjar vikur eða mán­uði vegna far­ald­­ur­s­ins. Eðli­­legt væri að samið yrði við starfs­­menn um að fara í hluta­­störf í sam­ræmi við lög um breyt­ingu á lögum um atvinn­u­­leys­is­­trygg­ingar og lögum um Ábyrgð­­ar­­sjóð launa (minnkað starfs­hlut­­fall) sem sam­­þykkt voru á Alþingi sl. föst­u­dag.“

BSRB segir að krafa um hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri nú þegar reynir á almanna­þjón­ust­una sé algjör­lega ótíma­bær og óskilj­an­leg. „Að hvetja stjórn­völd til þess að lækka starfs­hlut­fall starfs­manna til þess eins að greiða atvinnu­leys­is­bætur á móti annað dæmi um órök­rétta og gagns­lausa ráð­stöf­un. BSRB hefur stutt aðgerðir stjórn­valda sem lúta að því að bjarga þeim fyr­ir­tækjum frá gjald­þroti sem eru rekstr­ar­hæf en verða fyrir alvar­legum áföllum af völdum veirunn­ar. Það er hins vegar umhugs­un­ar­efni þegar stöndug fyr­ir­tæki sem greitt hafa eig­endum millj­arða í arð­greiðslur á und­an­förnum árum fara strax í að lækka starfs­hlut­fall eða segja upp fólki í tíma­bund­inni nið­ur­sveiflu frekar en að standa með sínu starfs­fólki.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent