Víðir: „Komm on, það er ekki að ástæðulausu að við settum þetta bann á“

Víðir Reynisson segir að dæmi séu um að starfsemi hárgreiðslustofa hafi verið flutt í heimahús. „Það er ekkert hættuminna að gera þetta heima hjá sér en inni á hárgreiðslustofu. Við verðum bara að vera með ljóta hárgreiðslu næstu vikurnar.“

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
Auglýsing

Lög­reglan hefur fengið ábend­ingar um það að verið sé að færa ­þjón­ustu sem veitt er á hár­greiðslu­stofum til dæmis í heima­hús eftir að hert­ar ­reglur um sam­komu­bann tóku gildi fyrr í vik­unni. „Komm on, það er ekki að á­stæðu­lausu að við settum þetta bann á,“ sagði Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra á upp­lýs­inga­fund­inum í dag. „Það er ekk­ert hættu­m­inna að gera þetta heima hjá sér en inni á hár­greiðslu­stof­unn­i. Við verðum bara að vera með ljóta hár­greiðslu næstu vik­urn­ar. Við verðum að lifa með því.“

Víðir minnti á að fólk í sótt­kví mætti fara út að ganga en ­þyrfti að gæta þess að halda 2 metra fjar­lægð milli sín og ann­arra veg­far­enda. En hann árétt­aði að fólk í sótt­kví mætti ekki fara í versl­anir eða annað slíkt. „Við erum að fá allt of mikið af til­kynn­ingum um fólk í sótt­kví sem er að fara í versl­an­ir. Þó að þú reynir að halda tveggja metra fjar­lægð þá er það ekki ­leyfi­leg­t.“

Víðir minnti einnig á að ekki fleiri en tutt­ugu mættu vera á hverjum vinnu­stað sam­kvæmt hertu regl­unum og að allir yrðu að gæta þess að halda tveggja metra fjar­lægð frá næsta manni. „Við erum með ágæta rým­is­greind og ágæt í stærð­fræði og kunnum að telja upp á tutt­ug­u.“

Auglýsing

Hvað versl­anir varðar benti Víðir á að ef ekki væri lengra en tveir metrar milli afgreiðslu­kassa yrði annar hver kassi að vera lok­að­ur. „Það er ekki flókn­ara en það.“

Versl­anir eiga sam­kvæmt regl­unum að merkja á gólf hvar t­veggja metra línan er. „Og ekki vera að sækja um und­an­þágur fyrir hvað sem er. Þetta sam­komu­bann og þessar tak­mark­anir eru settar í ákveðnum til­gangi, til að verja líf. Við sjáum stöð­una á gjör­gæsl­unni núna, við sjáum stöð­una á Land­spít­al­an­um. Og þetta er ástæðan fyrir því að við erum að fara í þetta. Verið ekki að sækja um und­an­þágur fyrir starf­semi sem getur beð­ið.“

Víðir sagði að öllum ætti að vera full­kunn­ugt um að margt í sam­fé­lag­inu lægi niður að stóru leyti. „Það mun leggj­ast ennþá meira niður á næst­unni. Við verðum bara að aðlaga okkur að því ástandi. Það kemur betri tíð, það kemur sum­ar. Vinnum þetta saman þangað til.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent