Stjórn Landssambands eldri borgara (LEB) segir að í öllum þeim aðgerðum sem stjórnvöld hafa gert til að koma til móts við fyrirtæki og einstaklinga vegna þeirra áhrifa sem kórónuveiran hefur á þjóðfélagið sé hvergi minnst á aðgerðir sem snerta hagsmuni eldri borgara landsins. Þetta kemur fram í ályktun LEB sem send var út í dag.
Þá kemur fram að margir eldri borgarar þurfi á víðtækri þjónustu að halda eins og að fara í mötuneyti, verslanir og apótek, margir í leigubíl. Nú þurfi eldri borgarar að fá sendingar heim sem felur í sér aukinn kostnað.
Stjórn LEB skorar á sveitarfélögin að taka upp gjaldfrjálsa heimsendingu til þeirra eldri borgara sem þurfa að fá sendingar heim til sín. Stjórn LEB skorar jafnframt á sveitarfélögin að lækka fasteignagjöld sem komi öllum til góða.
Stjórn LEB telur í því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu gæti verið rétt að leggja fram fé til Tryggingastofnunar ríkisins til að sinna þeim verst settu.
Stjórn LEB skorar enn fremur á ríkisvaldið að stíga nú það skref að hækka almenna frítekjumarkið í 50 þúsund krónur á mánuði. Sú aðgerð muni auka ráðstöfunartekjur sambýlinga um 7.094 krónur á mánuði og hjá einbýlingum um 8.970 krónur á mánuði eftir skatt.
Stjórn LEB skorar að lokum á stjórnvöld að afgreiða frumvarp, sem nú eru til umsagnar, um félagslega aðstoð við fólk með skerta búsetu.