Aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum hefur í samráði við sóttvarnalækni og almannavarnardeild ríkislögreglustjóra ákveðið að bregðast við Covid-19 smiti í Bolungarvík, Hnífsdal og á Ísafirði með hertum aðgerðum.
Fyrsta smitið var staðfest í gær og grunur er um fleiri.
Frá og með morgundeginum, 2. apríl, verður leik- og grunnskólum í Bolungarvík og á Ísafirði lokað. Þó fá börn á forgangslistum vistun á leikskólum og 1. og 2. bekkjum grunnskóla.
Samkomubann verður miðað við fimm manns en tekið er fram í tilkynningu að þetta eigi þó ekki við um fjölskyldur sem búi á sama heimili.
Fjöldi viðskiptavina í stærri verslunum (>150 fermetrar) má að hámarki vera 30 á hverjum tíma.
Hvatt er til þess að fólk haldi sig heima, haldi samskiptafjarlægð, takmarki ferðir og fylgi leiðbeiningum yfirvalda, segir í tilkynningu sem lögreglan á Vestfjörðum hefur birt á Facebook.
Þeim vinnustöðum eða hópum sem telja sig þurfa undanþágu er bent á að sækja um slíkt hjá heilbrigðisráðuneytinu.
Smitrakning stendur yfir
Þessi ráðstöfun er tímabundin og ætluð til að hefta Covid-19 smit. Smitrakning stendur yfir og beðið er niðurstöðu nokkurs fjölda sýna sem tekin hafa verið.
Ákvörðunin tekur að svo stöddu ekki til Suðureyrar, Flateyrar, Þingeyrar eða Súðavíkur. Er það á grundvelli stöðu smitrakningar í dag. Áfram eru íbúar á þessum stöðum hvattir til að fylgja almennum reglum og leiðbeiningum.
Fólk sem finnur til einkenna á að halda sig heima og hafa samband við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í síma 450 4500 eða á heilsuvera.is. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10-11, en fyrst þarf að fá samband við lækni. Spurningum um sjúkdóminn sjálfan er mörgum svarað á Covid.is.