Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja til 4. maí þær takmarkanir á samkomum og skólahaldi sem áttu að falla úr gildi 13. apríl. Ákvörðunin er í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Þótt vel hafi gengið að halda útbreiðslu smita í skefjum veldur áhyggjum hve alvarlega veikum einstaklingum sem þurfa á gjörgæslu að halda hefur fjölgað hratt, segir í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
„Nú skiptir öllu máli að við höldum áfram að standa saman sem einn maður, fylgja fyrirmælum okkar besta fagfólks og koma þannig í veg fyrir að álag á heilbrigðiskerfið fari yfir þolmörkin“ er haft eftir heilbrigðisráðherra í tilkynningunni.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra kom fram að margvíslegar aðgerðir, m.a. framangreindar takmarkanir, hafa skilað því að tekist hefur að hefta útbreiðslu COVID-19 í samfélaginu. Til þessa hefur fjölgun smita ekki verið meiri en svo að hún helst í hendur við bjartsýnustu spár hvað það varðar samkvæmt spálíkani sérfræðinga þar að lútandi sem sjá má á vefnum Covid.hi.is.
Aftur á móti hefur alvarlega veikum einstaklingum fjölgað jafnt og þétt, sem lýsir sér m.a. með miklu álagi á gjörgæsludeild Landspítalans. Ljóst er að frekari aukning á smiti í samfélaginu með fjölgun alvarlega veikra, getur skapað mikinn vanda innan heilbrigðiskerfisins og torveldað því að gegna hlutverki sínu eins og þörf krefur.
Takmörkunum verði aflétt í áföngum
Engar breytingar verða á gildandi takmörkunum á samkomum og skólahaldi aðrar en framlengdur gildistími til 4. maí. Á tímabilinu verður undirbúin áætlun um hvernig best megi standa að því að aflétta gildandi takmörkunum í áföngum. Stefnt er að því að kynna þau áform fyrir lok þessa mánaðar.
Veittar undanþágur halda gildi
Undanþágur sem veittar hafa verið frá takmörkunum á samkomum og skólahaldi munu halda gildi sínu sem nemur framlengingu aðgerða, þ.e. til 4. maí. Áréttað er að undanþágur eru því aðeins veittar að mikið sé í húfi, þ.e. í þágu allsherjarreglu, öryggis ríkisins eða til verndar lífi eða heilsu.