Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna COVID-19, að því er fram kemur á vef spítalans í dag.
Þá hafa alls sjö manns látist eftir að hafa smitast af sjúkdómnum hér á landi.
Sá fyrsti sem lést úr COVID-19 hérlendis var ástralskur ferðamaður, sem lést á heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík um miðjan mars. Íslensk kona lést svo á Landspítalanum í lok mars og tvö andlát urðu í síðustu viku og þrjú í þessari viku.
Auglýsing