Samherji nýtir sér hlutabótaúrræði stjórnvalda

Vegna sóttvarnaráðstafana í fiskvinnslum Samherjasamstæðunnar á Akureyri og Dalvík eru starfsmenn nú í 50 prósent starfshlutfalli. Fyrirtækið nýtir sér hlutabótaúrræði stjórnvalda, en tryggir þó að starfsmenn verði ekki fyrir kjaraskerðingu.

Bjorgolfurthorssteinn.jpg
Auglýsing

Vegna sótt­varna­ráð­staf­ana í fisk­vinnslum Sam­herja og Útgerð­ar­fé­lags Akur­eyr­inga, dótt­ur­fé­lags Sam­herja, eru starfs­menn þar nú í 50 pró­sent starfs­hlut­falli og vinna annan hvern dag. 

Sam­herji nýtir sér þannig hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda, en fyr­ir­tækið ætlar sér samt að tryggja að starfs­fólkið verði ekki fyrir nokk­urri launa­skerð­ingu vegna þessa, sam­kvæmt svari Björg­ólfs Jóhanns­son­ar, starf­andi for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

„Breytt starfs­hlut­fall er til komið vegna auk­inna krafna um sótt­varnir en mark­miðið er að minnka líkur á að smit ber­ist á milli fólks og tryggja að starfs­fólk líði sem best þannig að það geti sinnt starfi sínu í sem mestu örygg­i,“ segir í svari Björg­ólfs, sem bætir við að Sam­herji geri sér ekki grein fyrir því hversu lengi ástandið vari, en hluta­bóta­úr­ræði stjórn­valda er ætlað að gera fyr­ir­tækjum sem verða fyrir áhrifum á rekst­ur­inn kleift að halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við sem flesta starfs­menn.

Auglýsing

„Það er því að okkar mati ábyrgð­ar­hluti að bregð­ast strax við með við­eig­andi hætti og gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja áfram­hald­andi starf­semi félags­ins á meðan og eftir að þessu ástandi lýk­ur. Með því að nýta þetta úrræði er okkar starfs­fólk örugg­ara á vinnu­stað, auk þess sem farið er að til­mælum yfir­valda, sem ekki er hægt með alla starfs­menn í hús­inu í einu. Við höfum sagt að við ætlum að tryggja að okkar starfs­fólk verði ekki fyrir skerð­ingu launa af þessum sök­um,“ segir einnig, í svari for­stjór­ans.

Sam­herji er eitt stærsta fyr­ir­tæki lands­ins, eitt af stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum í Evr­ópu og hefur vaxið gríð­ar­lega und­an­far­inn rúman ára­tug. Í árs­lok 2018 nam eigið fé Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, sem sam­anstendur af Sam­herja hf. og Sam­herja Hold­ing, 111 millj­örðum íslenskra króna.

Sam­kvæmt tölum frá Vinnu­mála­stofnun hafa yfir 30 þús­und manns þegar sótt um hluta­bætur vegna skerts starfs­hlut­falls, fjöldi sem nemur yfir 15 pró­sent starf­andi á íslenskum vinnu­mark­aði. Þar af hafa yfir tvö þús­und manns sótt um hluta­bætur á starfs­svæði Sam­herja á Norð­ur­landi eystra. 

Margt í gangi hjá Sam­herja á tímum heims­far­ald­urs

Lækkað starfs­hlut­fall hluta starfs­manna vegna sótt­varna­ráð­staf­ana í sam­komu­banni og sam­dráttur á útflutn­ings­mörk­uðum um allan heim eru ekki einu áhrifin sem kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hefur haft á Sam­herj­a­sam­stæð­una. 

Áætlun um að auka hlut félags­ins í Eim­skip fór út af spor­inu og ástæða fannst einnig til þess að kalla Þor­stein Má Bald­vins­son aftur að dag­legum rekstri félags­ins.

Þann 10. mars, skömmu áður en ljóst var hversu gríð­ar­leg áhrif far­ald­ur­inn myndi hafa á efna­hags­líf víða um heim jók Sam­herji hlut sinn í Eim­skip yfir 30 pró­sent og þá mynd­að­ist yfir­töku­skylda á hendur fyr­ir­tæk­inu. Tíu dögum síð­ar, þegar fjár­mála­mark­aðir heims­ins voru komnir í upp­nám, óskaði fyr­ir­tækið eftir því við Fjár­mála­eft­ir­litið að fá heim­ild til að falla frá yfir­töku­skyld­unni og á það var fall­ist, eins og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans á dög­un­um.

Þetta er ein­ungis í þriðja sinn sem veitt er sér­stök heim­ild af hálfu eft­ir­lits­ins fyrir því að félög sleppi undan yfir­töku­skyldu og við­mæl­endur Kjarn­ans á fjár­mála­mark­aði sögðu að mörgum fjár­festum þætti ákvörðun Fjár­mála­eft­ir­lits­ins ótrú­leg. Einn komst þannig að orði að verið væri að sleppa Sam­herja af öngl­in­um, en miðað við mark­aðsvirði Eim­skips þegar Sam­herji fór yfir 30 pró­sent mörkin þá hefði það kostað sam­stæð­una 17,6 millj­arða króna að kaupa út aðra hlut­hafa. Ef miðað er við gengi bréfa í félag­inu dag­inn eft­ir, 11. mars, þegar þau hækk­uðu skarpt, hefði kostn­að­ur­inn verið 20 millj­arðar króna.

Þann 27. mars, mitt í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og fár­inu sem ríkir í sam­fé­lag­inu hans vegna, til­kynnti Sam­herji að Þor­steinn Már Bald­vins­son, sem „steig til hlið­ar“ sem for­stjóri eftir umfjöllun inn­lendra og erlendra fjöl­miðla um við­skipta­hætti Sam­herja í Namibíu í haust, væri sestur aftur á for­stjóra­stól hjá fyr­ir­tæk­inu til þess að leiða við­brögð fyr­ir­tæk­is­ins við COVID-19 far­aldr­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent