Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.689 hér á landi. Í gær voru þau 1.675 og hefur þeim því aðeins fjölgað um fjórtán síðasta sólarhringinn. Í dag eru 3.080 manns í sóttkví en í gær var fjöldinn 3.678. Alls hafa 15.498 lokið sóttkví.
Í dag er 841 einstaklingur með virkt COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 918. Elsti sjúklingurinn er 103 ára gömul kona, íbúi á öldrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík.
Jafnmargir eða 841 hefur náð bata.
Ellefu ný smit greindust í því 561 sýni sem tekið var á sýkla- og veirufræðideild Landspítala í gær. Af 941 sýni sem tekið var hjá Íslenskri erfðagreiningu fundust þrjú ný smit. Alls hafa 34.635 sýni verið tekið hér á landi frá upphafi faraldursins.
Enn er yfir helmingur þeirra sem greinist með sýkingu þegar í sóttkví sem sóttvarnalæknir hefur sagt sýna mikilvægi þeirrar aðgerðar við að hefta útbreiðslu veirunnar.
Á sjúkrahúsi liggja fjörutíu sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af ellefu á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is.
Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru átta látin. Einn sjúklingur lést síðasta sólarhringinn á Landspítalanum.
Gert er ráð fyrir því að rúmlega 2.100 manns muni greinast með COVID-19 hér á landi í þessari bylgju faraldursins, en talan gæti náð 2.600 samkvæmt svartsýnni spá. Þetta kemur fram í forspá vísindamanna Háskóla Íslands, Landspítala og landlæknisembættisins, sem miðast við gögn til og með 5. apríl.
Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúkdóm nái hámarki í þessari viku og að þeir verði um 1.400 talsins. Samkvæmt svartsýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 einstaklingar hafi þá virkan sjúkdóm á sama tíma.
Samkvæmt nýjustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja faraldursins fer yfir þurfi 140 manns að leggjast inn á sjúkrahús, en fjöldinn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heilbrgiðisþjónustu verður fyrir miðjan apríl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 einstaklingar geti verið inniliggjandi á sama tíma, en svartsýnni spá er 90 einstaklingar.
Uppfærð forspá gerir ráð fyrir því að á tíma faraldursins muni 28 einstaklingar veikjast alvarlega og þurfa gjörgæsluinnlögn, en svartsýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúklingar verði allt að 41 talsins.
Mestu álagi á gjörgæsludeildir er spáð í annarri viku apríl, en þá er búist við því að 11 sjúklingar liggi á gjörgæslu á sama tíma, en samkvæmt svartsýnni spá gætu það verið 19 manns.