Staðfest smit af kórónuveirunni eru orðin 1.711 hér á landi. Í gær voru þau 1.701 og hefur þeim því aðeins fjölgað um tíu síðasta sólarhringinn.
Núna eru 2.711 manns í sóttkví en í gær var fjöldinn 2.861. Alls hafa 15.751 lokið sóttkví.
Í dag eru 770 einstaklingar með virk COVID-19 smit en í gær var fjöldinn 804. Alls hafa 933 manns náð bata eftir að hafa smitast af veirunni. Búið er að taka alls 35.788 sýni hér á landi.
Af þeim tíu smitum sem greindust í gær voru tíu greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala, en þar voru alls 228 sýni tekin til skoðunar. Enginn af þeim 7 einstaklingum sem fóru í sýnatöku hjá Íslenskri erfðagreiningu í gær reyndust smitaðir.
Á sjúkrahúsi liggja 39 sjúklingar vegna COVID-19 sjúkdómsins, þar af níu á gjörgæslu, samkvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru átta látin.
Í nýjustu forspá vísindamanna við Háskóla Íslands, Landspítala og hjá landlæknisembættinu, sem byggir á gögnum til og með 5. apríl, var gert ráð fyrir því að fjöldi einstaklinga með virkan sjúkdóm næði hámarki í fyrstu viku apríl og yrði sennilega um 1.400 manns, en gæti viku seinna náð 1.800 manns samkvæmt svartsýnni spá.
Núna, 13. apríl, hefur virkum smitum farið fækkandi sjö daga í röð frá því að fjöldi þeirra náði hámarki þann 5. apríl. Þá voru 1.096 manns með virkan sjúkdóm.