Alls 38.600 einstaklingar á atvinnuleysiskrá í lok mars

Atvinnuleysi í mars mældist 9,2 prósent í marsmánuði. Hluti þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá eru án atvinnu en fjölmargir eru líka á hlutabótum, og reiknast inn í atvinnuleysishlutfallið. Búist er við því að 6.500 fyrirtæki nýti sér hlutabótaleiðina.

Flestir sem eru án atvinnu eða á hlutabótum störfuðu áður í ferðaþjónustu.
Flestir sem eru án atvinnu eða á hlutabótum störfuðu áður í ferðaþjónustu.
Auglýsing

Sam­tals reikn­að­ist atvinnu­leysi á Íslandi 9,2 pró­sent í mars­mán­uði og jókst um fimm pró­sentu­stig milli mán­aða. Atvinnu­leysi vegna almennra umsókna um atvinnu­leys­is­bætur fór í 5,7 pró­sent en að auki jókst heild­ar­at­vinnu­leysið um 3,5 pró­sentu­stig vegna þeirra sem sóttu um hluta­bætur vegna minnk­aðs starfs­hlut­falls. Sam­tals voru um 38.600 ein­stak­lingar á atvinnu­leys­is­skrá í lok mars, þar af um 24.400 í minnk­uðu starfs­hlut­falli og ríf­lega 14.200 manns að auki á almennum atvinnu­leys­is­bót­um.

Þetta kemur fram í skýrslu um vinnu­mark­að­inn á Íslandi frá Vinnu­mála­stofnun sem birt var í dag. 

Auglýsing
Þar segir að staðan á vinnu­mark­aði hafi gjör­breyst í  mars­mán­uði sökum þeirra tak­mark­ana sem farið var að setja á öll sam­skipti fólks sam­hliða útbreiðslu COVID-19 far­ald­urs­ins frá lokum febr­ú­ar. „Einkum kom þetta illa niður á fyr­ir­tækjum tengt flug­sam­göngum og ferða­þjón­ustu þar sem komur erlendra ferða­manna lögð­ust nán­ast af þegar líða tók á mars og sama er að segja um ferða­lög Íslend­inga inn­an­lands sem utan. Almennt atvinnu­leysi fór vax­andi strax framan af mars­mán­uði, en einkum þó þegar líða tók á mars­mán­uð.“

Í mars tóku auk þess gildi lög um minnkað starfs­hlut­fall sem heim­il­uðu að starfs­hlut­fall launa­fólks yrði fært niður í allt að 25 pró­sent starf á móti greiðslum atvinnu­leys­is­bóta sem námu þá allt að 75 pró­sent hlut­falli á móti laun­um. Þau lög gilda sem stendur til 1. júní en fast­lega er búist við því að þau verði fram­lengd. 

Í skýrsl­unni segir að um 5.200 fyr­ir­tæki hafi nýtt sér þennan mögu­leika fyrir sam­tals um 24.400 ein­stak­linga í mars­mán­uði. Auk þess sé gert ráð fyrir að  allt að 6.500 fyr­ir­tæki muni nýta sér þetta í allt á því tíma­bili sem hluta­bóta­leiðin er heim­il, fyrir nálægt 35.000 laun­þega.

Atvinn­u­­leysi í apríl mun verða allt að 17 pró­­sent, sam­­kvæmt spá Vinn­u­­mála­­stofn­unar sem greint var frá á RÚV í gær. Inni í þeim tölum eru þeir sem hafa sótt um hluta­bæt­ur. ­Gangi sú spá eftir verður það lang­­mesta atvinn­u­­leysi sem mælst hefur á Ísland­i.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent