Icelandair Group mun segja upp fleira fólki og breyta skipulagi félagsins í þessum mánuði. Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að mikil óvissa ríki um flug og ferðaþjónustu næstu misserin, hvenær ferðatakmörkunum verði aflétt og hvenær eftirspurn muni taka við sér á ný. „Til að bregðast við áframhaldandi óvissu, búa stjórnendur Icelandair Group félagið undir órætt tímabil þar sem starfsemi þess verður í lágmarki en sem stendur eru einungis örfá flug í viku í áætlun félagsins.“
Þar er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að það þurfi að aðlaga starfsemi Icelandair Group að þeim veruleika sem blasir við. „Það er gríðarleg óvissa framundan og því miður eru uppsagnir starfsfólks óumflýjanlegar til að komast í gegnum þetta krefjandi tímabil. Við leggjum áherslu á að tryggja grunnstarfsemi félagsins til að geta komist hratt af stað aftur og vonumst auðvitað til að geta boðið stærstum hluta þeirra starfsmanna sem um ræðir vinnu aftur um leið og aðstæður batna. Einn af helstu styrkleikum félagsins er sveigjanleiki til að bregðast hratt við breytingum á markaði og við ætlum okkur að vera tilbúin til að sækja fram af miklum krafti þegar tækifærin gefast á ný.“
Ætla í hlutafjárútboð til að bjarga sér
Icelandair Group tilkynnti í síðustu viku að félagið ætli að ráðast í hlutafjárútboð á næstunni og sækja með því aukið rekstrarfé til hlutahafa sinna.
Stærsti einstaki hluthafi Icelandair Group er bandaríski fjárfestingarsjóðurinn PAR Capital Management, sem keypti sig inn í félagið í apríl í fyrra í hlutafjáraukningu sem þá var framkvæmd. Sjóðurinn greiddi þá á 5,6 milljarða króna fyrir 11,5 prósent hlut en á nú 13,7 prósent. Næst stærsti eigandinn er Lífeyrissjóður verzlunarmanna með 11,8 prósent hlut og þar á eftir koma lífeyrissjóðirnir Gildi (7,24 prósent) og Birta (7,1 prósent). Alls eiga íslenskir lífeyrissjóðir að minnsta kosti 43,6 prósent í Icelandair Group með beinum hætti, en mögulega eiga þeir einnig meira með óbeinum hætti í gegnum nokkra fjárfestingasjóði sem eiga einnig stóran hlut í félaginu. Þessir lífeyrissjóðir munu þurfa að leggja fram aukið hlutafé eða verða þynntir út í boðuðu hlutafjárútboði.
Hlutabréf í frjálsu falli og gengur hratt á laust fé
Hlutabréf í Icelandair hafa verið í frjálsu falli það sem af er ári og sem stendur er þorri flugflota félagsins ekki í notkun. Alls hafa bréfin tapað 59 prósent af verðgildi sínu á árinu. Markaðsvirði félagsins er nú um 15,8 milljarðar króna. Í byrjun mars fór það undir 30 milljarða í fyrsta sinn síðan í mars 2012. Það hefur því næstum helmingast á nokkrum vikum. Hæst reis það í apríl 2016 og fór þá í 191,5 milljarð króna. Síðan þá hefur markaðsvirði íslenska flugfélagsins lækkað um 176 milljarða króna.
Fyrirtækið sagði upp 240 manns fyrir skemmstu og 92 prósent eftirstandandi starfsmanna þess voru fluttir í hlutabótaúrræði stjórnvalda, þar sem allt að 75 prósent af greiddum launum koma úr ríkissjóði.
Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að stjórnendur Icelandair væru nú að leita leiða til að styrkja fjárhag félagsins með því að styrkja hann til lengri tíma. Félagið réð Kviku banka, Íslandsbanka og Landsbankann sem ráðgjafa til að hefja skoðun á mögulegum leiðum til að ná því markmiði. Þá var greint frá því að stjórnendur Icelandair myndu vinna náið með íslenskum stjórnvöldum í því ferli. Boðuð hlutafjáraukning er meðal annars afleiðing af þeirri vinnu.
Í tilkynningu sem send var út vegna þessa í byrjun apríl sagði að lausafjárstaða Icelandair, að meðtöldum óádregnum lánalínum, væri þó enn vel yfir því viðmiði sem félagið starfar eftir en stefna þess hefur verið sú að þessi staða fari ekki undir 29 milljarða króna á núverandi gengi, eða 200 milljónir Bandaríkjadala, á hverjum tíma. „Eins og tilkynnt hefur verið um, hefur félagið gripið til ýmissa aðgerða til þess að verja lausafjárstöðu sína á undanförnum vikum. Hins vegar, ef miðað er við lágmarkstekjuflæði hjá félaginu í apríl og maí, er ljóst að lausafjárstaða félagsins muni skerðast og fara undir ofangreint viðmið.“