Stjórn Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) fer fram á það í áskorun til stjórnvalda að sum úrræði sem í boði eru fyrir rekstraraðila og einstaklinga, og kynnt hafa verið til leiks í aðgerðapökkum síðustu vikna, verði einnig látin nýtast íþróttahreyfingunni.
Því sé mjög ábótavant í þeim úrræðum stjórnvalda sem kynnt hafa verið til þessa og úr því þurfi nauðsynlega að bæta. „Til dæmis getur íþróttahreyfingin ekki nýtt sér lokunarstyrki þrátt fyrir að starfsemi á hennar vegum hafi verið stöðvuð í þágu sóttvarna. Eins nýtast launaúrræði illa vegna fjölda hlutastarfa í hreyfingunni, en þau úrræði geta ekki nema um 30% starfsfólks knattspyrnuhreyfingarinnar nýtt sér.“
Flestir leikmenn knattspyrnuliða á Íslandi spila ekki knattspyrnu að aðalstarfi heldur er um hálf-atvinnumennsku eða áhugamennsku að ræða.
Skilyrði fyrir leiðunum
Í hlutabótaleiðinni svokölluðu er markmiðið að vinnuveitendur haldi ráðningarsambandi við starfsmenn sína eins og mögulegt er, í stað þess að segja fólki upp. Til að ná þessu markmiði hefur hið opinbera skuldbundið sig til að greiða allt að 75 prósent af launum þeirra sem skrá sig á leiðina til 1. júní næstkomandi hið minnsta.
Vilja betrumbætur á úrræðum
Í áskorun stjórnar KSÍ segir að óhjákvæmilegar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda vegna faraldursins hafi leitt af sér stöðvun á íþróttastarfsemi í landinu og komið sér mjög illa fyrir knattspyrnu- og íþróttahreyfinguna í heild sinni. „Rétt er að minna á að íþróttahreyfingin hefur á liðnum áratugum lyft grettistaki hvað varðar holla íþróttaiðkun ungs fólks og fyllt þjóðina stolti yfir árangri afreksfólks á innlendum og erlendum vettvangi. Þennan árangur er mikilvægt að varðveita með öllum tiltækum ráðum og búa í haginn fyrir enn frekari sókn.“
Þar segir að knattspyrnuhreyfingin horfi til þess að aðgerðir ríkisstjórnar og sveitarfélaga létti þeim róðurinn þannig að lágmarka megi þann skaða sem þegar er orðinn. Því beini stjórn KSÍ þeirri eindregnu áskorun til stjórnvalda að tryggja íþróttahreyfingunni öfluga viðspyrnu á komandi vikum og mánuðum. „Með betrumbótum á þessum úrræðum ásamt öðrum aðgerðum myndi rekstrarumhverfi íþróttafélaganna verða betra og félögin, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, geta frekar sinnt sínu mikilvæga samfélagslega hlutverki.“