Alþýðusamband Íslands (ASÍ) fagnar áformum ríkisstjórnarinnar um að framlengja hlutabótaleiðina til að standa vörð um afkomu og verja störf, að því er fram kemur í tilkynningu frá sambandinu í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti þriðja aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar í morgun á blaðamannafundi. Þar kom fram að hlutabótaleiðin yrði framlengd með óbreyttu sniði út júní, en hún átti að gilda til 1. júní. Eftir það verður hún í boði með breyttu sniði – hámarksgreiðslur úr opinberum sjóðum verða þá 50 prósent af greiddum launum í stað 75 prósent – og nánari skilyrðum út ágúst.
Þá verður fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir umfangsmiklu tekjutapi gefinn kostur á að sækja um stuðning úr ríkissjóði vegna greiðslu hluta launakostnaðar á uppsagnarfresti til að tryggja réttindi launafólks og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot fyrirtækja. Auk þess verða settar verða einfaldari reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja sem miða að því þau geti komist í skjól með einföldum hætti.
Í tilkynningu ASÍ segir að sambandið hafi átt viðræður við stjórnvöld um þær aðgerðir sem kynntar voru í dag og lofað hafi verið samráði um útfærslu þeirra. Það sé nauðsynlegt að verkalýðshreyfingin eigi aðkomu að þeim aðgerðum sem gripið er til enda varði þær framtíð vinnandi fólks og almennings til næstu ára.
Mikilvægast að tryggja afkomu launafólks
Samkvæmt ASÍ er mikilvægasta verkefnið nú að tryggja afkomu launafólks sem missir vinnu að hluta eða alveg til að sporna gegn langvinnum áhrifum kreppunnar á efnahagslífið og hag heimilanna. ASÍ leggur áherslu á skýr skilaboð um skilyrði fyrir stuðningi til fyrirtækja og mun, samkvæmt tilkynningunni, taka þátt í samráði um framkvæmd þessara úrræða. Fram kemur hjá sambandinu að leikreglurnar þurfi að vera ótvíræðar til að ríkisstuðningur skili sér í atvinnuöryggi og traustri afkomu fólks.
ASÍ styður jafnframt aðgerðir til að tryggja réttindi starfsfólks á uppsagnarfresti. Sambandið telur jákvætt að kveða á um forgangsrétt starfsmanna sem missa vinnuna til endurráðningar og að í slíkum tilvikum eigi starfsmenn að halda áður áunnum réttindum. ASÍ áréttar að hækka verði atvinnuleysisbætur þegar í stað en fram kemur hjá sambandinu að grunnbætur séu umtalsvert lægri en lágmarkslaun og þak tekjutengingar sé oft lágt og mánuðir þar sem þeirra réttinda nýtur við of fáir.
Setja þurfi skýr skilyrði fyrir opinberum stuðningi til fyrirtækja
ASÍ ítrekar fyrri varnaðarorð um að sett skuli skýr skilyrði fyrir opinberum stuðningi til fyrirtækja sem lúti að því að þeim beri að viðhalda störfum eftir fremsta megni, fara eftir kjarasamningum og standa skil á framlagi sínu til samfélagsins. Þar sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa bent á að stuðningur þessi muni nýtast Icelandair áréttar ASÍ að flugfreyjur hafa verið samningslausar frá ársbyrjun 2019 og að núverandi kreppu eigi ekki að nýta til að þrýsta kjörum þeirra niður.