Hagræðingaraðgerðir verða gerðar hjá Eimskip í dag sem fela meðal annars í sér að stöðugildum hjá félaginu á alþjóðavísu fækkar um 73, þar af eru 47 á Íslandi. Beinar uppsagnir í heildina eru 54 talsins, þar af 39 á Íslandi. Aðgerðirnar ná til flestra starfshópa fyrirtækisins, þar með talið stjórnenda.
Í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar segir að á undanförnum fimmtán mánuðum hafi félagið verið á „þeirri vegferð að einfalda og straumlínulaga rekstur félagsins með margvíslegum aðgerðum og tengist hluti þeirra aðgerða sem gripið er til í dag þeirri vegferð. Að auki hefur óvissan varðandi þróun mála í íslenska hagkerfinu og á erlendum mörkuðum félagsins vegna COVID-19 áhrif á umfang þessara aðgerða“.
Sú breyting verður á framkvæmdastjórn félagsins að Edda Rut Björnsdóttir, sem verið hefur markaðs- og samskiptastjóri Eimskips í rúmt ár, mun taka við samþættu sviði mannauðs-, markaðs- og samskiptamála. Edda sem er menntaður viðskiptafræðingur hefur yfir 20 ára fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu, þar af starfaði hún í 12 ár hjá Íslandsbanka. Við þessa breytingu mun Elín Hjálmsdóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri Mannauðssviðs, láta af störfum.
Þá er gerð sú breyting að innflutningsdeild á Íslandi verður skipt upp með þeim hætti að sérstök áhersla verður annars vegar á stærri fyrirtæki og hins vegar á lítil og meðalstór fyrirtæki og einstaklinga. Með þessu er skerpt á þjónustu í innflutningi við þessa mismunandi viðskiptavinahópa sem gerir félagið betur í stakk búið til að veita þeim góða þjónustu og heildarlausnir.
Nauðsynlegar aðgerðir með tilliti til afkomu fyrirtækisins
„Sú vegferð hagræðingar og samþættingar sem félagið hefur verið á hefur ekki verið auðveld og þá sérstaklega er varðar fækkun starfsfólks,“ er haft eftir Vilhelm Má Þorsteinssyni forstjóra í tilkynningunni. „Hún hefur hins vegar verið nauðsynleg þegar litið er til afkomu félagsins síðustu misseri og þá veldur COVID-19 mikilli óvissu sem ekki er hægt að líta framhjá. Með þessum aðgerðum styrkjum við fjárhagslegar stoðir félagsins sem og reksturinn til framtíðar. Þá má ekki gleyma að félagið hefur fjárfest töluvert í sjálfvirknivæðingu og umbótum á ferlum og vinnulagi sem styður við þessar aðgerðir. Við sjáum ekki fyrir okkur frekari aðgerðir af þessari stærðargráðu í nánustu framtíð.
Á sama tíma og við ráðumst í þessar sársaukafullu aðgerðir hef ég óskað eftir því við stjórn félagsins að lækka laun mín um 10% og þannig sýna í verki að þessar hagræðingaraðgerðir nái til allra laga í fyrirtækinu.
Þrátt fyrir fordæmalausar aðstæður er heildarflutningakeðjan hjá Eimskip að virka, skipin okkar eru að sigla, flutningabílarnir að keyra og viðkomuhafnir okkar eru opnar. Við erum mjög meðvituð um hlutverk Eimskips sem mikilvægs innviðafyrirtækis í flutningaþjónustu á vörum til og frá landinu og í dreifingu innanlands og við munum halda uppi okkar góða þjónustustigi áfram.“