Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að vera búin undir smit meðal viðskiptavina

Öll ferðaþjónustufyrirtæki verða að vera undir það búin að takast á við smit meðal viðskiptavina sinna og þess verður að krefjast að allir aðilar geri viðbragðsáætlanir. Þetta kemur fram í skýrslu um framkvæmd skimunar meðal erlendra ferðamanna.

ferðamenn, ferðaþjónusta, suðurland, tourism 14831009322_dc79025b21_o.jpg
Auglýsing

Ljóst er að sam­vinna við fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu er grund­vall­ar­at­riði við það að opna landa­mæri Íslands með því að bjóða komu­far­þegum að fara í sýna­töku eða fram­vísa vott­orði í stað þess að fara í sótt­kví. 

Þetta kemur fram í skýrslu verk­efn­iss­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á landa­mærum sem kynnt var heil­brigð­is­ráð­herra í gær. 

Í skýrsl­unni er farið yfir það hvernig fyr­ir­komu­lagi við ferða­lög fólks hingað til lands gæti verið háttað en einnig um hvað svo takið við þegar ferða­lag inn­an­lands hefst. Verk­ferlar fyrir ferða­þjón­ustu og fram­línu­starfs­fólk vegna COVID-19 eru þegar til staðar og aðgengi­legir á heima­síðu land­lækn­is. Í for­grunni er grund­vall­arsmit­gát starfs­fólks og fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu. Í skýrslu verk­efn­is­stjórn­ar­innar kemur fram að mik­il­vægt sé að ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki séu vel und­ir­búin og hafi skýrar leið­bein­ingar um það verk­lag sem við­hafa þarf svo þau geti sinnt sínu hlut­verki á réttan hátt. 

Auglýsing

Verk­efn­is­stjórnin segir sam­vinnu við fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu vera grund­vall­ar­at­riði. Mikil ábyrgð muni hvíla á þeim og því þurfa kröfur til þeirra að vera skýrar og afdrátt­ar­laus­ar. „Öll ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki verða að vera undir það búin að takast á við smit meðal við­skipta­vina sinna og þess verður að krefj­ast að allir aðilar geri við­eig­andi við­bragðs­á­ætl­an­ir. Ferða­þjón­ustu­að­ilar munu einnig þurfa að gang­ast við ríkri eft­ir­lits­skyldu gagn­vart heilsu­fari ferða­manna og vera undir það búnir að senda þá í sýna­töku ef svo ber undir og jafn­vel sinna þeim í sótt­kví og/eða ein­angr­un.“

­Fer­ill erlendra ferða­manna um íslenskt heil­brigð­is­kerfi er sá sami og á við um íbúa á Íslandi. Hins vegar þarf að tryggja aðgengi þeirra að upp­lýs­ing­um, þ.e. hvert og hvernig fólk leitar upp­lýs­inga og leið­bein­inga og hvernig það ber sig að við að leita heil­brigð­is­þjón­ustu. Gera þarf ráð fyrir að ferða­fólk geti slasast eða veikst ótengt COVID-19 meðan á dvöl þeirra stend­ur. Taka þarf afstöðu til sótt­varna­ráð­staf­ana í sjúkra­flutn­ingum og innan heil­brigð­is­stofn­ana í ljósi þessa.

Áætl­aður fjöldi komu­far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl frá því að sýna­taka hefst og tvær vikur þaðan í frá,  er óljós. Hvorki liggur fyrir fram­boð á flugi, eft­ir­spurn ferð­manna til eða frá land­inu eftir flugi né hvort almennur ferða­vilji er til staðar ef val er um aðra mögu­leika við kom­una til lands­ins en tveggja vikna sótt­kví. Verk­efn­is­stjórnin skrifar í skýrslu sinni að til­kynn­ing um vænt­an­lega sýna­töku á Kefla­vík­ur­flug­velli og opnun lands­ins fyrir ferða­lögum hefur fengið tölu­verða athygli erlendis sem gæti leitt af sér aukna eft­ir­spurn.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent