Búið að finna alla eftirlýstu mennina

Allir sex rúmensku ríkisborgararnir sem komu til landsins fyrir fimm dögum hafa verið handteknir. Að minnsta kosti tveir þeirra reyndust með virkt COVID-19 smit og smita því aðra.

Auglýsing
Síðasti maðurinn sem lýst var eftir. Hann fannst síðdegis á sunnudag.
Síðasti maðurinn sem lýst var eftir. Hann fannst síðdegis á sunnudag.

Lög­reglan hefur haft uppi á tveimur af þeim þremur rúm­ensku rík­is­borg­urum sem lýst var eftir seint í gær. Sam­kvæmt frétt RÚV höfðu menn­irnir skráð sig inn á hótel á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og barst lög­reglu ábend­ing um menn­ina eftir að lýst var eftir þeim. Þetta er haft eftir Víði Reyn­is­syni, yfir­lög­reglu­þjóni hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Þar segir enn fremur að búið sé að taka sýni úr mönn­unum tveimur til að athuga hvort þeir séu smit­aðir af COVID-19, líkt og tveir félagar þeirra sem hand­teknir voru í gær reynd­ust vera. Búist er við að nið­ur­staða úr sýna­tök­unni að liggi fyrir síðar í dag. 

Auglýsing
Í morgun hafði ekki tek­ist að hafa upp á einum rúm­enskum karl­manni á þrí­tugs­aldri, Pioaru Alex­andru Ionut. Mynd af honum er hægt að sjá með þess­ari frétt. Grunur var um að hann geti verið smit­aður af COVID-19. Hann fannst þó sídð­eg­is.

Í frétt RÚV segir að rann­sókn á máli mann­anna sex hafi hins vegar nú tekið óvænta stefnu þar sem lög­reglan kannar nú sam­skipti hóps­ins við annan hóp Rúm­ena sem er tal­inn vera staddur hér á landi, og hefur verið hér í viku.

Tveir greindir með virkt COVID-19 smit

Lög­­reglan á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu lýsti í gær eftir þremur rúm­enskum karl­­mönn­um, sem komu til lands­ins fyrripart vik­unn­­ar, nánar til­­­tekið fyrir fimm dögum síð­­­an. Menn­irnir þrír komu til lands­ins í sex manna hópi, en þeir eru taldir vera mög­u­­lega smit­aðir af COVID-19 og vera með virk smit. 

Þrír hinna sex mann­anna voru hand­­teknir í gær vegna búð­­ar­hnupls á Sel­­fossi og reynd­ust tveir þeirra vera greindir með virkt COVID-19 smit. Því grun­aði lög­­regl­una að þeir þrír sem lýst var eftir gætu verið smit­aðir lík­­a. Mennirnir tveir sem voru handsamaðir í morgun.

Í morgun voru tveir þeirra þriggja sem leitað var hand­teknir og sá þriðji var, líkt og áður sagði, hand­tek­inn síð­degis í dag.

Fóru víða

Lög­­reglan á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu greindi frá því í gær að hún hefði hand­­tekið áður­­­nefnda þrjá menn fyrir þjófnað á Sel­­fossi í gær. Við rann­­sókn máls­ins hafi komið í ljós að þeir komu til lands­ins fyrir fjórum dögum og áttu því að vera í sótt­­­kví. Vegna þessa var ákveðið að taka sýni úr nef­koki til að kanna með hugs­an­­leg COVID-19 smit.

Nið­­ur­­stöður bár­ust lög­­­reglu um hádegi í gær og reynd­ust þá tveir ein­stak­l­ing­ana vera jákvæð­­ir.

Þar sem menn­irnir voru með virk smit, og höfðu ekki myndað mótefni gegn COVID-19, eru 16 lög­­­reglu­­menn hjá lög­­regl­unni á Suð­­ur­landi og Höf­uð­­borg­­ar­­svæð­is­ins sem komu að máli þeirra í sótt­­­kví.

Viðir sagði við RÚV í gær að menn­irnir sem voru hand­­teknir í gær verði fluttir í far­­sótt­­ar­hús á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu í dag, sunn­u­dag, þar sem þeir verða í ein­angr­un. Þar munu þeir sæta gæslu lög­­regl­unnar þar til næstu skref verða ákveðin en fá við­eig­andi heil­brigð­is­­þjón­­ustu og aðgang að heil­brigð­is­­starfs­­fólki sem mun meta veik­indi þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent