Hugmyndafræðilegar pólitískar línur munu skerpast í haust

Formaður Viðreisnar segir að ríkisstjórnin hafi ekki verið undirbúin undir áfallið sem skall á fyrr á árinu – og að efnahagsþrengingar hafi þegar verið fyrirséðar. Hún telur þetta vera áhugaverða tíma til að vera í stjórnmálum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, segir að nið­ur­sveiflan í efna­hags­líf­inu hafi þegar verið hafin fyrir COVID-19 far­ald­ur­inn og segir hún að rík­is­sjóður hafi verið orð­inn ósjálf­bær fyrir veiruna. Hún telur enn fremur að rík­is­stjórnin hafi ekki verið reiðu­búin þegar áfallið skall á.

Þetta kemur fram í ítar­legu við­tali Kjarn­ans við Þor­gerði Katrínu sem birt­ist um síð­ustu helgi.

„Það kom mér á óvart að þau skildu ekki vera til­búin í ljósi þess að nið­ur­sveiflan var haf­in. Þau máttu gera sér grein fyrir því. Við í Við­reisn bentum líka á að rík­is­stjórnin væri að eyða um efni fram. Hag­vöxt­ur­inn var ekki í sam­ræmi við útgjalda­þenslu rík­is­sjóðs og við erum ekki lengur með þrotabú föllnu bank­anna sem borga allt. Það var stóri lottó­vinn­ing­ur­inn eftir að við fengum og gátum greitt svona hratt niður rík­is­skuld­ir. Af því að þar komu þessar risa­greiðslur inn til okk­ar, í gegnum þrota­bú­in,“ segir hún.

Auglýsing

Þor­gerður Katrín segir þetta jafn­framt vera ótrú­lega áhuga­verða tíma sem við lifum nú. „Það er spenn­andi að vera í póli­tík núna – og ég spái því ekki síst í haust að þá muni hug­mynda­fræði­legar póli­tískar línur skerp­ast.

Ég held að þegar fram líður á árið þá munum við sem elskum stjórn­mál og höfum áhuga á þeim sjá hversu áhuga­verðir tímar séu framund­an. Og það er mjög stutt í ákveðna kontrasta í sam­fé­lag­inu sem við megum ekki hunsa eða líta fram hjá. Því þeir munu líka vera veg­vísar inn í fram­tíð­ina – það er hvernig fram­tíð við ætlum að skapa og móta eftir veiruna.“

Hér má lesa við­talið í heild sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent