Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands sæmdi í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní, fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Á meðal þeirra sem fengu orðuna að þessu sinni voru Alma Möller landlæknir, Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.
Þau eru betur þekkt sem þríeykið sem stóð í stafni baráttu Íslands gegn útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómnum og urðu fastagestir á heimilum margra landsmanna á meðan að daglegir uppýsingafundir stóð yfir samhliða samgöngubanni og öðrum takmörkunum sem gripið var til að þeirra undirlagi, til að hefta útbreiðslu veirunnar.
Á meðal annarra sem voru sæmdir fálkaorðunni í dag voru Hildur Guðnadóttir, sem hefur sópað að sér stærstu verðlaunum í kvikmynda- og tónlistarheiminum fyrir tónlist sína í kvikmyndinni Joker og sjónvarpsþáttunum Chernobyl. Þá hlaut Helgi Björnsson, tónlistarmaður og leikari, einnig orðuna en hann vann sig enn og aftur inn í hjörtu landsmanna á meðan að á samkomubanninu stóð með kvöldvökum í sjónvarpi Símans á laugardagskvöldum sem kölluðust „Heima með Helga“.
Þeir sem hlutu fálkaorðuna í dag voru:
- Alma Möller landlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina
- Anna Dóra Sæþórsdóttir prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á vettvangi ferðamálafræði og útivistar
- Bárður Hafsteinsson skipaverkfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til hönnunar fiskiskipa og íslensks sjávarútvegs
- Einar Bollason fyrrverandi formaður KKÍ og stofnandi Íshesta, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íþrótta og störf á vettvangi ferðaþjónustu
- Ellý Katrín Guðmundsdóttiur fyrrverandi borgarritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á opinberum vettvangi og framlag til opinskárrar umræðu um Alzheimer sjúkdóminn
- Helgi Björnsson leikari og tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar og leiklistar
- Hildur Guðnadóttir tónskáld, Berlín, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar tónlistar
- Hulda Karen Daníelsdóttir kennari og formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði starfsþróunar og kennslu íslensku sem annars máls og framlag til eflingar tengsla við afkomendur Íslendinga í Vesturheimi
- Jón Kalman Stefánsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta
- Jón Sigurðsson fyrrverandi rektor, seðlabankastjóri og ráðherra, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu
- Sigrún Þuríður Geirsdóttir þroskaþjálfi, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir afrek á sviði sjósunds
- Sigurborg Ingunn Einarsdóttir fyrrverandi hjúkrunarforstjóri og ljósmóðir, Eskifirði, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðisþjónustu í heimabyggð
- Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Kópavogi, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu heilbrigðismála og framlag í baráttu við Covid-19 farasóttina
Fréttin verður uppfærð.