Afsláttur af skimunargjaldi ef greitt er fyrirfram

Þeir sem ferðast til landsins frá1. júlí munu geta greitt fyrir skimun fyrirfram. Ef greitt er fyrirfram fæst tvö þúsund króna afsláttur af 11 þúsund króna skimunargjaldinu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Auglýsing

Ferða­menn sem koma til lands­ins frá 1. júlí munu geta greitt fyrir skimun á Kefla­vík­ur­flug­velli og öðrum landamæra­stöðvum raf­rænt áður en þeir fara af stað. Gjaldið verður þá 9 þús­und krón­ur, en 11 þús­und krónur fyrir þá sem kjósa að greiða fyrir skimun­ina við kom­una til lands­ins.

Þetta kom fram í máli Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjarn­ar­götu í dag, þar sem rætt var um skimun fyrir kór­ónu­veirunni á landa­mær­um.

Katrín sagði  að fylgst yrði með því hvort gjald­takan myndi hafa fæl­ing­ar­á­hrif fyrir ferða­fólk, en stjórn­völd hefðu ákveðið að nauð­syn­legt væri að inn­heimta gjald fyrir skimun­ina til þess að mæta þeim kostn­aði sem til fellur við hana. 

Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herra sagð­ist einnig með­vituð um að margir hefðu nú áhyggjur af því smiti sem nú hefur komið upp hér inn­an­lands, sem Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir segir að sé senni­lega eitt stærsta rakn­ing­ar­mál sem rakn­ing­arteymið hefur feng­ist við.

Eins og fram hefur komið eru nú á þriðja hund­rað ein­stak­linga í sótt­kví vegna sam­skipta við einn ein­stak­ling, knatt­spyrnu­konu sem kom frá til Íslands frá Banda­ríkj­unum 18. júní. Að minnsta kosti einn ein­stak­lingur hefur greinst með stað­fest smit sem rakið var til kon­unnar og er það fyrsta inn­an­lands­smitið sem grein­ist síðan í maí.

Katrín sagði að þessi smit minntu á að fólk þyrfti að halda vöku sinni, stríð­inu við veiruna væri ekki lok­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent