Auglýsing frá hollenska rafhjólaframleiðandanum VanMoof má ekki birtast í sjónvarpi í Frakklandi, þar sem ARPP, eftirlitsstofnun með franska auglýsingamarkaðnum, telur auglýsinguna bæði kvíðavaldandi og koma óorði á bílaframleiðendur með ósanngjörnum hætti.
Hollenska fyrirtækið gaf auglýsinguna út snemma í júní. Í henni sjást myndir af loftmengun, umferðarteppum, bílslysum og fleiru speglast í lakki sportbíls, sem síðan bráðnar niður í málmsúpu sem síðan myndar söluvöru fyrirtækisins, rennilegt rafhjól af gerðinni VanMoof S3.
„Tími til að aka framtíðinni,“ er slagorð auglýsingarinnar, sem féll franska yfirvaldinu síður en svo í geð. Tilgangur hollenska fyrirtækisins er augljós, að sýna fram á kosti rafhjólsins sem fararskjóta með því að benda á ýmsa vel þekkta ókosti bílaumferðar.
Frökkunum þótti þetta of langt gengið. Samkvæmt umfjöllun bandaríska vefmiðilsins Verge sendu þeir bréf til Hollands þar sem auglýsingunni er hafnað og því beint til hjólaframleiðandans að breyta henni, ef hún ætti að verða birtingarhæf í frönsku sjónvarpi.
Auglýsingin þótti sem áður segir bæði sýna bíla í of neikvæðu ljósi og svo þótti hún einnig brjóta í bága við franskar reglur um að markaðssetning megi ekki byggja á því að vekja ótta eða þjáningu hjá neytendum.
Vöktu athygli á banninu
Forsvarsmenn VanMoof hafa að sjálfsögðu brugðist við þessu með því að snúa vörn í sókn, enda hefur það nú oft verið þannig að umtöluðustu auglýsingarnar eru bannaðar auglýsingar.
Í gær sendi fyrirtækið frá sér tilkynningu þar sem vakin var athygli á því að auglýsingin hefði verið bönnuð. Hjólaframleiðandinn furðar sig á ákvörðuninni og bendir á að í Hollandi og Þýskalandi hafi auglýsingin verið sýnd í sjónvarpi án athugasemda.
„Það er óskiljanlegt að bílaframleiðendur fái að skauta framhjá umhverfisvandamálum, en þegar einhver ögri þeirri stöðu sé það ritskoðað,“ er haft Ties Carlier, öðrum stofnanda VanMoof í tilkynningunni.
Þar er einnig sett spurningamerki við hlutleysi franska eftirlitsaðilans og bent á að franski bílaiðnaðurinn er í vanda vegna kórónuveirufaraldursins, sem hafi meðal annars verið mætt af stjórnvöldum með 8 milljarða evra ríkisframlagi til framleiðenda.
VanMoof segist einfaldlega hafa viljað hvetja áhorfendur til þess að hugsa um hvernig þeir væru að ferðast um og hvernig þeir gætu haft jákvæð áhrif á heiminn.
Fyrirtækið var stofnað af bræðrunum Ties og Taco Carlier í Amsterdam árið 2009 og hefur hannað og selt 120.000 reiðhjól síðan þá víða um heim. Þeir senda að vísu ekki til Íslands.