Fyrrum eigendur Mjólku vilja skaðabætur frá Mjólkursamsölunni

Stofnendur og fyrrum eigendur Mjólku fara fram á að MS viðurkenni skaðabótaskyldu vegna samkeppnisbrota sem hafi leitt til þess að Mjólka fór í greiðsluþrot. Brot MS hafa verið staðfest fyrir dómstólum og fyrirtækið greitt sektir vegna þeirra.

matvara_13223523394_o.jpg
Auglýsing

Stofn­endur og fyrrum eig­endur Mjólku hafa stefnt Mjólk­ur­sam­söl­unni vegna þess sem þeir langvar­andi, ítrek­aðra og alvar­leg brota á sam­keppn­is­lögum af hálfu MS. Með stefn­unni nú fara fyrr­ver­andi eig­endur Mjólku fram á MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu sína gagn­vart þeim.

Í stefn­unni, sem send hefur verið á fjöl­miðla, kemur fram að beint tjón af ólög­mætri hátt­semi MS sé metið á 58,9 millj­ónir króna, en að óbeint tjón sé mun meira og hafi haft það í för með sér að Mjólka stóð frammi fyrir greiðslu­þroti í árs­lok árið 2009.

Lands­réttur komst að þeirri nið­ur­stöðu í mars­mán­uði að MS ætti að greiða alls 480 millj­ónir króna í stjórn­valds­sekt vegna brota á sam­keppn­is­lög­um, fyrir að hafa mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og mis­munað við­skipta­að­ilum sínum þegar kom að því að selja hrá­mjólk til fram­leiðslu á mjólk­ur­vör­um.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafði áður kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að MS hefði með þessu brotið mjög alvar­lega gegn sam­keppn­is­lög­um. Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá árinu 2016 sagði að hátt­semi MS, sem seldi Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga hrá­mjólk á lægra verði en öðrum á mark­aði, hefði verið til þess fallin að veita þeim veru­legt sam­keppn­is­for­skot.

Auglýsing

Upp komst um þessa hátt­semi MS fyrir hálf­gerða slysni. Árið 2012 fékk Ólafur M. Magn­ús­son, sem áður stóð í stafni hjá Mjólku, sendan reikn­ing frá MS sem var stíl­aður á Mjólku II þegar hann sjálfur var byrj­aður með KÚ, sem einnig var að kaupa hrá­mjólk af MS.

Þá komst hann að því að MS var að selja KS hrá­mjólk­ina á nokkuð lægra verði en honum sjálf­um. Í kjöl­farið til­kynnti hann það til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem fór að skoða mál­ið.

Brot MS hafa verið stað­fest fyrir dóm­stólum og nú fara stofn­endur Mjólku, sem áður seg­ir, fram á að MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu sína gagn­vart þeim.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent