Vegna þess hversu miklu þessi samvinna heilbrigðisyfirvalda og Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) skipti fyrir almannaheill vonast Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra til þess að þau finni lausn á „þessu máli og getum haldið áfram því verkefni okkar að tryggja sem best heilbrigði þjóðarinnar“. Frá þessu greinir Katrín í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.
Kári Stefánsson forstjóri ÍE greindi frá því í dag í opnu bréfi til Katrínar að frá og með deginum í dag myndi Íslensk erfðagreining hætta öllum samskiptum við sóttvarnalækni og landlækni út af SARS-CoV-2. Síðustu sýnin sem þau myndu afgreiða væru þau sem berast til þeirra mánudaginn 13. júlí.
Finnst hugmyndin um faraldsfræðistofnun góð
„Eins og kemur fram í bréfinu sem ég sendi Kára er augljóst að geta íslensks samfélags til að takast á við faraldra eins og covid-19 þarf að vera meiri en hún er nú. Þess vegna tók ég vel í erindi hans um að koma á laggirnar sérstakri faraldsfræðistofnun innan embættis landlæknis – þar sem byggð yrði upp þekking og reynsla til að takast á við faraldra framtíðar. Mér finnst þetta reyndar mjög góð hugmynd.
Ennfremur að ákveðið hefði verið að ráða sérstakan verkefnastjóra til að vinna áfram slíkar hugmyndir, til að efla innviði heilbrigðiskerfisins til að takast á við faraldra með hliðsjón af tillögu Kára. Slíkur undirbúningur og framkvæmd tekur hins vegar alltaf ákveðinn tíma og ég lagði því til að þær tillögur myndu liggja fyrir eigi síðar en 15. september,“ skrifar Katrín.
Vonast til að geta leitað áfram til starfsfólks ÍE
Kári segir í opnu bréfi sínu að sér finnist að þessi vinna verði að ganga hraðar fyrir sig. Katrín segist geta vel fallist á það sjónarmið og „við munum gera okkar til þess að unnið verði eins hratt og örugglega framast er kostur. Að sjálfsögðu vonast ég til þess að í þessu mikilvæga verkefni munum við áfram geta leitað til starfsfólks ÍE vegna þeirrar þekkingar og reynslu sem þar er innandyra.“
Katrín segir enn fremur að framlag Íslenskrar erfðagreiningar í baráttunni við COVID-19 sé ómetanlegt. „Það vitum við öll og það verður seint fullþakkað. Án aðstoðar fyrirtækisins hefði baráttan við faraldurinn orðið okkur miklu mun erfiðari og þungbærari.“
Kæru vinir. Nokkur orð vegna opins bréfs Kára Stefánssonar. Eins og kemur fram í bréfinu sem ég sendi Kára er augljóst...
Posted by Katrín Jakobsdóttir on Monday, July 6, 2020