Veirufræðideildin ekki í stakk búin til að taka við fyrr en í lok ágúst

Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala, segist vonast til þess að Kára Stefánssyni snúist hugur varðandi aðkomu Íslenskrar erfðagreinar að landamæraskimunum. Deildin sé ekki tilbúin til að taka verkefnið að sér strax.

Landspítalinn
Auglýsing

Haf­ist var handa við það í dag að rífa niður veggi á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans, til þess að byggja þar upp nýja og betri aðstöðu með nýjum tækjum svo að deildin verði í stakk búin til þess að taka við landamæra­skimunum af Íslenskri erfða­grein­ingu. Stefnt er að því að þess­ari vinnu ljúki í lok ágúst.

Þetta segir Karl G. Krist­ins­son yfir­læknir deild­ar­inn­ar, í sam­tali við Kjarn­ann. Hann von­ast til þess að hægt verði að fá Íslenska erfða­grein­ingu til að halda áfram að skima á landa­mær­unum þangað til sýkla- og veiru­fræði­deildin er til­búin eftir breyt­ing­ar, en í dag lýsti Kári Stef­áns­son því yfir að ÍE myndi hætta að skima 13. júlí.

Anna í mesta lagi 1.000 sýnum á dag

„Ann­ars erum við ekki í góðum málum varð­andi ferða­menn­ina. Það verður erfitt að skima alla sem eru að kom­a,“ segir Karl, en hann segir að deildin anni því í mesta lagi að greina um 1.000 sýni á dag með núver­andi tækja­kost­i. Karl G. Kristinsson yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Mynd: Af vef Landspítala.

Þar af séu kannski 2-300 sjúk­linga­sýni frá Land­spít­al­anum og því væri mögu­legt greina á bil­inu 5-700 sýni úr ferða­mönn­um, eins og fram kom í skýrslu verk­efn­is­stjórnar um sýna­töku fyrir COVID-19 á landa­mærum, sem skilað var til heil­brigð­is­ráð­herra í lok maí.

Það er því ljóst að annað hvort verður að hugsa landamæra­skimun­ar­verk­efnið upp á nýtt, eins og bæði Alma Möller land­læknir og Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir hafa sagt við fjöl­miðla eftir að Kári setti fram yfir­lýs­ingu sína, eða þá að sann­færa Kára og Íslenska erfða­grein­ingu um að halda áfram. 

For­stjór­anum hefur jú snú­ist hugur nokkrum sinnum á síð­ustu mán­uð­um, í tengslum við fyr­ir­tæk­is­ins að skimunum fyrir veirunni, fyrst inn­an­lands og svo á landa­mær­unum.

Auglýsing

Heil­brigð­is­ráð­herra ekki til við­tals 

Birgir Jak­obs­son, aðstoð­ar­maður Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra, sagði við Kjarn­ann þegar leitað var eftir við­brögðum frá ráð­herra vegna yfir­lýs­ingar Íslenskrar erfða­grein­ingar að heil­brigð­is­ráð­herra hefði ekki tök á að veita við­tal í dag, hvorki um þetta mál né önn­ur.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent