Huawei á undir högg að sækja beggja vegna Ermasunds

Kínverski fjarskiptarisinn Huawei hefur mætt andstöðu franskra og breskra yfirvalda í kjölfar viðskiptaþvingana Bandaríkjanna gegn fyrirtækinu.

sími
Auglýsing

Net­ör­ygg­is­stofnun Frakka, ANS­SI, hvetur frönsk fjar­skipta­fyr­ir­tæki til þess að snið­ganga Huawei í vænt­an­legri 5G upp­bygg­ingu. Frakkar ætla samt sem áður ekki að banna aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins að 5G væð­ingu fjar­skipta­kerfa þar í landi. Bretar skoða nú hvort banna eigi Huawei aðkomu að 5G væð­ingu þar í landi.



Í frétt Reuters er haft eftir Guilaume Poupard, yfir­manni ANS­SI, að stofn­unin muni ekki fram­fylgja ströngu banni á notkun bún­aðar frá Huawei, en þau félög sem hingað til hafa ekki notað búnað Huawei eru hvött til að halda því áfram.



Tvö af stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækjum Frakka, SFR og Bou­ygues Tel­ecom, nota búnað Huawei í kerfum sín­um. ANSSI hefur veitt þeim fyr­ir­tækjum sem nota búnað frá Huawei heim­ild til að halda því áfram en gild­is­tími heim­ild­anna er frá þremur árum og upp í átta ár.

Auglýsing


Banda­rísk yfir­völd hafa hvatt vest­ræn ríki til þess að snið­gang Huawei í upp­bygg­ingu 5G kerf­is­ins. Þau telja bún­að­inn geta verið not­aðan til njósna af hálfu Kín­verja. Þeim ásök­unum hafa for­svars­menn Huawei hafn­að. Fyr­ir­tæk­inu er meinað að nota hug­búnað og tækni frá Banda­ríkj­unum í fram­leiðslu og vöru­þróun en bannið nær einnig til fram­leið­enda sem sjá Huawei fyrir íhlut­um.



Fram kem­ur í frétt BBC að bresk yfir­völd meti nú hvort að þau þurfi að taka harð­ari afstöðu gegn Huawei vegna tak­markan­anna sem banda­rísk yfir­völd hafa sett fyr­ir­tæk­inu. Vegna tak­markan­anna gæti sú staða komið upp að íhlutir í bún­aði frá Huawei fái ekki grænt ljós frá þar­lendum stofn­unum sem sinna net­ör­ygg­is­mál­um. Í jan­úar var þak sett á hlut Huawei í breska fjar­skipta­kerf­inu en nú gæti svo farið að bún­aður fyr­ir­tæk­is­ins hverfi með öllu úr kerf­inu.



Bún­aður Huawei er nú þegar í kerfum BT og Voda­fone sem eru stór fyr­ir­tæki á breskum fjar­skipta­mark­aði. Fyr­ir­tækin hafa óskað eftir því að bún­aður Huawei í kerfum þeirra megi vera í notkun til árs­ins 2030. 



Ákveði Bretar að banna búnað Huawei í 5G net­inu gæti það haft í för með sér að sá bún­aður fyr­ir­tæk­is­ins sem fyrir er í 3G og 4G kerf­unum þurfi einnig að víkja. Kostn­að­ur­inn við það gæti hlaupið á millj­örðum punda auk þess sem slíkar kvaðir gætu tafið fyrir ljós­leið­ara­væð­ingu lands­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent