Katrín: Ég vonast til þess að við finnum lausn á þessu máli

Forsætisráðherrann hefur tjáð sig um þá ákvörðun Íslenskrar erfðagreiningar að hætta að skima fyrir COVID-19 sjúkdómnum.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Auglýsing

Vegna þess hversu miklu þessi sam­vinna heil­brigð­is­yf­ir­valda og Íslenskrar erfða­grein­ingar (ÍE) skipti fyrir almanna­heill von­ast Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra til þess að þau finni lausn á „þessu máli og getum haldið áfram því verk­efni okkar að tryggja sem best heil­brigði þjóð­ar­inn­ar“. Frá þessu greinir Katrín í stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu sinni rétt í þessu.

Kári Stef­áns­son for­stjóri ÍE greindi frá því í dag í opnu bréfi til Katrínar að frá og með deg­inum í dag myndi Íslensk erfða­­grein­ing hætta öllum sam­­skiptum við sótt­­varna­lækni og land­lækni út af SAR­S-CoV-2. Síð­­­ustu sýnin sem þau myndu afgreiða væru þau sem ber­­ast til þeirra mán­u­dag­inn 13. júlí.

Auglýsing

Finnst hug­myndin um far­alds­fræði­stofnun góð

„Eins og kemur fram í bréf­inu sem ég sendi Kára er aug­ljóst að geta íslensks sam­fé­lags til að takast á við far­aldra eins og covid-19 þarf að vera meiri en hún er nú. Þess vegna tók ég vel í erindi hans um að koma á lagg­irnar sér­stakri far­alds­fræði­stofnun innan emb­ættis land­læknis – þar sem byggð yrði upp þekk­ing og reynsla til að takast á við far­aldra fram­tíð­ar. Mér finnst þetta reyndar mjög góð hug­mynd.

Enn­fremur að ákveðið hefði verið að ráða sér­stakan verk­efna­stjóra til að vinna áfram slíkar hug­mynd­ir, til að efla inn­viði heil­brigð­is­kerf­is­ins til að takast á við far­aldra með hlið­sjón af til­lögu Kára. Slíkur und­ir­bún­ingur og fram­kvæmd tekur hins vegar alltaf ákveð­inn tíma og ég lagði því til að þær til­lögur myndu liggja fyrir eigi síðar en 15. sept­em­ber,“ skrifar Katrín.

Von­ast til að geta leitað áfram til starfs­fólks ÍE

Kári segir í opnu bréfi sínu að sér finn­ist að þessi vinna verði að ganga hraðar fyrir sig. Katrín seg­ist geta vel fall­ist á það sjón­ar­mið og „við munum gera okkar til þess að unnið verði eins hratt og örugg­lega fram­ast er kost­ur. Að sjálf­sögðu von­ast ég til þess að í þessu mik­il­væga verk­efni munum við áfram geta leitað til starfs­fólks ÍE vegna þeirrar þekk­ingar og reynslu sem þar er inn­an­dyra.“

Katrín segir enn fremur að fram­lag Íslenskrar erfða­grein­ingar í bar­átt­unni við COVID-19 sé ómet­an­legt. „Það vitum við öll og það verður seint full­þakk­að. Án aðstoðar fyr­ir­tæk­is­ins hefði bar­áttan við far­ald­ur­inn orðið okkur miklu mun erf­ið­ari og þung­bær­ari.“

Kæru vin­ir. Nokkur orð vegna opins bréfs Kára Stef­áns­son­ar. Eins og kemur fram í bréf­inu sem ég sendi Kára er aug­ljóst...

Posted by Katrín Jak­obs­dóttir on Monday, July 6, 2020


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent