Eigendur Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna tveggja, sem hefur verið til umræðu frá því árið 2018. Í fréttatilkynningu í dag segir að með samrunanum sé verið að „bregðast við breytingum í rekstarumhverfi matvælaiðnaðar undanfarin misseri“.
„Það er mat eigenda félaganna að sameinað félag sé betur í stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum og birgjum, ekki síst bændum, góða þjónustu á samkeppnishæfu verði,“ segir í tilkynningu vegna samrunans, sem gerður er með fyrirvara um samþykki bæði Samkeppniseftirlitsins og hluthafafundar Búsældar, eiganda Norðlenska.
Þar munu um 500 bændur greiða atkvæði um samrunann.
Viðræður um þennan stóra samruna á kjötframleiðslumarkaði hafa sem áður segir verið í gangi því árið 2018, en þær virtust þó úr sögunni í fyrra.
Þá var greint frá því að þær hefðu verið settar á ís og fram kom í tilkynningu frá Norðlenska að enn bæri talsvert í milli og viðræðum yrði ekki haldið áfram nema „einhver nýr vinkill“ kæmi á málið. Nú hafa félögin náð saman um þau atriði sem út af stóðu.
Hátt á fjórða hundrað starfsmenn í heild
Eigendur Kjarnafæði eru bræðurnir Eiður og Hreinn Gunnlaugssynir, en fyrirtækið var stofnað árið 1985. Þar starfa um 130 manns og fer starfsemi að mestu fram á Svalbarðseyri í Eyjafirði. Bræðurnir eiga einnig afurðastöð SAH á Blönduósi, þar sem unnin eru um 52 ársverk og einnig eiga þeir 34 prósent hlut í Sláturfélagi Vopnfirðinga, sem rekur sauðfjársláturhús.
Norðlenska varð til árið 2000 við samruna kjötiðnarstöðvar KEA og Kjötiðjunnar Húsavík, en stækkaði árið 2001 þegar félagið sameinaðist þremur kjötvinnslum Goða. Norðlenska framleiðir kjötvörur, einkum undir vörumerkjunum Norðlenska, Goði, Húsavíkurkjöt, og KEA.
Félagið er sem áður segir í eigu Búsældar, félags kjötframleiðenda í Eyjafirði, Þingeyjarsýslum og á Austur- og Suðausturlandi, en hluthafar Búsældar eru um 500 bændur.
Um 190 ársverk eru unnin hjá félaginu og skiptist starfsemin á milli Akureyrar, þar sem rekið er stórgripasláturhús og kjötvinnsla, Húsavíkur, þar sem rekin eru sauðfjársláturhús og kjötvinnsla fyrir sauðfjárafurðir, og söluskrifstofa í Reykjavík.