Forseti Brasilíu greinist með COVID-19 en segist ekkert óttast

Jair Bolsonaro forseti Brasilíu greindi frá því í dag að hann hefði greinst með COVID-19, en hann hefur fundið fyrir slappleika frá því á sunnudag. Forsetinn hefur kallað veiruna aumt kvef, en 65.000 Brasilíumenn liggja í valnum eftir að hafa smitast.

Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu.
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu.
Auglýsing

Jair Bol­son­aro, for­seti Bras­il­íu, hefur greinst með kór­ónu­veiruna, en hann fór í sýna­töku í gær­kvöldi eftir að hafa fundið fyrir slapp­leika, þreytu og hita frá því á sunnu­dag. ­For­set­inn hefur verið harð­lega gagn­rýndur und­an­farnar vikur og mán­uði fyrir við­brögð sín við heims­far­aldr­in­um, en yfir 65.000 Bras­il­íu­menn hafa lát­ist eftir að hafa smit­ast af COVID-19 til þessa og 1,6 millj­ónir manna smit­ast.

For­set­inn sagði blaða­mönnum sjálfur frá því í dag að sýnið hefði reynst jákvætt, en hann lagði áherslu á að honum liði vel. Sam­kvæmt frétt New York Times ræddi for­set­inn við blaða­menn úr nokk­urra metra fjar­lægð fyrir utan for­seta­höll­ina um hádeg­is­bil í dag. Hann sagði að honum líði vel sökum þess að hann hefur verið að taka malar­íu­lyfið hydroxycloroquine, sem rann­sóknir hafa reyndar sýnt fram á að gerir lítið í bar­átt­unni við veiruna. 

For­set­inn sagði að það væri engin ástæða til að ótt­ast. Svona væri bara lífið og lífið myndi halda áfram. Bol­son­aro hefur ítrekað gert lítið úr alvar­leika far­ald­urs­ins og kallað kór­ónu­veiruna lítið annað en aumt kvef, sem hann sjálfur myndi standa af sér af því að hann væri hraust­ur.

Auglýsing

Við­brögðin í Bras­ilíu hafa tekið nokkuð mið af því, en Bol­son­aro hefur verið í hörðum slag gegn bæði fylk­is­stjórum og borg­ar­stjórum sem hafa gengið lengra í sam­komu­tak­mörk­unum en hann sjálfur hefur vilj­að. Brasilía hefur auk þess haft þrjá heil­brigð­is­ráð­herra síðan að far­ald­ur­inn kom upp, Bol­son­aro spark­aði einum í apríl og annar hætti í maí eftir ein­ungis mánuð í starfi.

For­set­inn hefur sagt að efna­hagur lands­ins þoli ekki að staðna og hefur líkt veirunni við rign­ingu sem ómögu­legt sé að sleppa und­an. Í gær slak­aði hann á lögum sem skylda Bras­il­íu­menn til þess að bera grímur á almanna­færi, en hann sjálfur hefur ofsinnis sleppt því að bera grímu er hann sést opin­ber­lega, jafn­vel þrátt fyrir að það sé skylda á þeim stöðum sem hann heim­sæk­ir.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent