Matís stendur nú fyrir netkönnun þar sem ætlunin er að skoða breytingar á matarvenjum og neysluhegðun Íslendinga vegna COVID-19 faraldursins. Könnunin er hluti af norænni-baltneskri rannsókn. Frá þessu er greint á vefsíðu fyrirtækisins.
Markmið rannsóknarinnar er samkvæmt Matís að skilja betur breytingar á neysluvenjum og viðhorfi til matar á meðan neyðarstig almannavarna var í gildi 6. mars til 25. maí 2020.
„Með því að safna þessum gögnum og bera saman niðurstöður mun könnunin varpa ljósi á ýmis vandamál neytenda og áhyggjur í tengslum við matvælaöryggi, fæðuframboð og fæðuaðgengi,“ segir í frétt Matís um málið.
Gögnin verða á engan hátt persónugreinanleg, samkvæmt Matís. Niðurstöður könnunarinnar verða bornar saman við kannanir sem gerðar hafa verið í nágrannalöndunum. Þær geti svo nýst til að skoða ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda og matvælaframleiðanda á tímum faraldursins.
Þá kemur fram að faraldurinn hafi haft áhrif á okkur öll og með mismunandi hætti. Hann hafi haft áhrif á mataræði okkar og heilsu. Hann hafi haft áhrif á okkur andlega og fjárhagslega. Með betri skilningi á öllum þessu þáttum verði Íslendingar betur í stakk búin til að takast á við svipaðar aðstæður í framtíðinni.