Icelandair mun á næstunni flytja á annað þúsund armenskra og bandarískra ríkisborgara á milli Los Angeles í Kaliforníu og Yerevan í Armeníu. Farþegarnir hafa verið strandaglópar vegna COVID-19 faraldursins en hafa nú fengið heimild og tækifæri til að snúa til síns heima.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair í dag.
Þá segir að um sé að ræða sérverkefni á vegum Loftleiða Icelandic sem unnið sé í samvinnu við stjórnvöld í Armeníu, flutningafyrirtækið Cross Line og kjörræðismann Íslands í Armeníu. Þá hafi íslenska utanríkisþjónustan aðstoðað við tilurð verkefnisins.
„Boeing 767 vélar Icelandair verða nýttar í verkefnið en þær taka um 260 farþega. Flogið er um Ísland sem liggur nokkurn veginn um miðja vegu milli Kaliforníu og Armeníu.
Fyrsta flugið fer frá Los Angeles laugardaginn 11. júlí og fyrsta flug frá Yerevan fer mánudaginn 13. júlí. Fjöldi flugferða liggur ekki enn fyrir en sem fyrr telur farþegafjöldinn á annað þúsund. Um milljón manns af armenskum uppruna búa í og við Los Angeles,“ segir í tilkynningunni.
Enn fremur kemur fram að þjónustan um borð verði í samræmi við núverandi verklagsreglur Icelandair. Um 9 til 12 manns verða í hverri áhöfn, öllu jafna 2 til 3 flugmenn, sex flugfreyjur- og þjónar og einn flugvirki.
Kærkomin viðbót
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, segir í tilkynningunni að með því að nýta reynslu, þekkingu og alla innviði Icelandair Group hafi starfsfólk Loftleiða Icelandic, í samstarfi við ýmsar deildir samstæðunnar, sýnt mikla útsjónarsemi þegar kemur að sérverkefnum í leiguflugi.
„Þessi flug eru kærkomin viðbót við fraktflug frá Kína til Evrópu og Norður Ameríku sem Icelandair Group hefur sinnt á undanförnum vikum. Verkefni sem þessi færa félaginu auknar tekjur og skapa störf fyrir starfsfólk þar sem undirbúningur og skipulag fer fram hér á landi. Þetta er gott dæmi um þann sveigjanleika sem Icelandair Group og dótturfélög þess búa yfir til að taka að sér verkefni sem þessi með skömmum fyrirvara,“ segir hann.