Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru 573 þúsund krónur á mánuði í fyrra eða alls um 6,9 milljónir króna yfir árið. Miðgildi heildartekna var lægra, 473 þúsund krónur á mánuði eða um 5,6 milljónir króna yfir árið. Hækkun miðgildis var 0,9 prósent á milli áranna 2018 og 2019 sem er mun minni hækkun heldur en síðustu ár. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar.
Heildartekjur yngsta aldurshópsins, þeirra sem eru 16 til 24 ára, voru lægstar, alls 231 þúsund krónur á mánuði. Heildartekjur voru hæstar innan aldurshópsins 55 til 74 ára, 669 þúsund krónur á mánuði. Tekjur eldriborgara, þeirra sem eru 67 ára og eldri voru að meðaltali 517 þúsund krónur á mánuði. Helmingur einstaklinga í þeim aldurshópi höfðu 410 þúsund krónur eð á lægri heildartekjur á mánuði.
„Eins er áhugavert að skoða hvernig heildartekjur skiptast í atvinnutekjur, fjármagnstekjur og aðrar tekjur eftir aldurshópum. Í langflestum aldurshópum eru atvinnutekjur stærsti hluti heildartekna að undanskildum aldurshópunum 67 ára og eldri, þar sem aðrar tekjur vega mest. Til atvinnutekna teljast allar launatekjur og aðrar starfstengdar greiðslur en til annarra tekna meðal annars atvinnuleysisbætur, félagsleg aðstoð og lífeyris- eða bótagreiðslur,“ segir í frétt á vef Hagstofunnar.
Talnaefnið byggir á skattframtölum einstaklinga sem eru skattskyldir hér á landi og skilað hafa framtali til ríkisskattstjóra. Undanskilin eru framtöl þeirra sem eru með handreiknað framtal, sem eru með áætlaðar tekjur, sem létust á árinu eða eru búsettir erlendis samkvæmt þjóðskrá.