Bílaleigubílum í umferð fjölgar milli mánaða

Bílaleigur hafa fjölgað bílum í umferð um tæplega 2.500 á milli mánaða. Flotinn heldur samt sem áður áfram að minnka og hann er núna fimmtungi minni en á sama tíma í fyrra.

myrdalsjokull_14542752642_o.jpg
Auglýsing

Bíla­leigu­bílum í umferð fjölg­aði um tæp­lega 2.500 á milli júní og júlí sam­kvæmt tölum frá Sam­göngu­stofu sem finna má í skamm­tíma­hag­vísum ferða­þjón­ust­unnar sem Hag­stofan birtir mán­að­ar­lega. Í upp­hafi júlí voru bíla­leigu­bílar í umferð alls 15.628 sam­an­borið við 13.143 bíla í upp­hafi júní. Í júlí í fyrra voru bíla­leigu­bílar í umferð rétt tæp­lega 25 þús­und.



Með því að skoða tölur á vef Hag­stof­unnar um bíla­leigu­bíla eftir skrán­ingu og mán­uðum sést að fjölg­unin er aðal­lega drifin áfram af bíla­leigu­bílum sem snúa aftur á göt­urnar eftir að hafa verið teknir úr umferð. 



Í kjöl­far kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins brugðu bíla­leigur á það ráð að taka stóran hluta af flota sínum úr umferð. Þá eru bíl­arnir teknir af núm­erum og við það spar­ast ýmis gjöld sem þarf að greiða af bíl­un­um. Fjöldi bíla­leigu­bíla sem voru úr umferð náði hámarki í maí en í upp­hafi þess mán­aðar voru þeir 7.869. Í upp­hafi júlí voru alls 4.455 bíla­leigu­bílar úr umferð.

Auglýsing


Flot­inn heldur líka áfram að minn­ka, heild­ar­fjöldi bíla í eigu bíla­leiga er nú rúm­lega 20 þús­und og nemur fækk­unin tæpum 700 bílum milli mán­aða. Í júlí í fyrra voru alls 25.640 bíla­leigu­bílar í flot­anum svo hann hefur skroppið saman um fimmt­ung á síð­ast­liðnu ári. Ekki hafa verið færri bílar í flot­anum síðan í maí árið 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent